Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking hf. er þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega fimmtíu manns og starfsstöðvar eru á tveimur stöðum á landinu, á Akureyri og í Kópavogi. Þekking býður fyrirtækjum upp á alhliða rekstrarþjónustu, kerfisveitu, hýsingu, Internetþjónustu og gagnaflutninga ásamt margs konar sérlausnum, ráðgjöf og kennslu.

Starfsmenn

stefan_johannesson
Stefán Jóhannesson
stefan(hjá)thekking.is
Stefán er með M.Sc. gráðu í tölvunarfræðum frá Uppsala háskólanum í Svíþjóð og B.Sc. gráðu í tölvunarfræðum frá Háskóla Íslands. Stefán hefur verið framkvæmdastjóri Þekkingar hf. frá stofnun fyrirtækisins og einn af eigendum þess frá árinu 2004. Stefán hefur setið í stjórn Samtaka Íslenskra Upplýsingatæknifyrirtækja (SUT) frá árinu 2005. Áður en Stefán tók við stöðu framkvæmdastjóra Þekkingar hf. stýrði hann tölvudeild KEA á Akureyri.
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf