
Gagnaöryggi er einn meginþátturinn sem fyrirtæki velta fyrir sér í tengslum við vinnslu í netþjónaumhverfi. Þekking hf er samstarfsaðili 2X sem er fyrirtæki sem náð hefur miklum árangri í að bjóða örugga og hagkvæma fjarvinnslulausn með 2X Virtual Desktop Server hugbúnaðinum. Lausnin býður upp á uppsetningu á sýndarumhverfi fyrir útstöðvar í stað þess að setja upp stýrikerfin á útstöðvarnar sjálfar.
Þegar notandi tengist netþjóni þá er lykilatriði að dulkóðum gagna sé áreiðanleg. 2X Virtual Desktop Server tryggir gagnaöryggi með því að nota SSL skírteini við tengingu. Þegar 2X „client“ tengist í gegnum SSL kannar hann hvar SSL skírteinið var útgefið. Þegar tengingin býður ekki upp á SSL skírteini er notandinn beðinn um að staðfesta SSL skírteini netþjónsins og hafa notendur möguleika á að hætta við tengingu áður en mikilvæg gögn eru færð á þjóninn. Þegar öruggri tengingu hefur verið komið á eru allar gagnafærslur dulkóðaðar og þ.a.l. eru öll gögn örugg innan kerfisins.
Hafir þú áhuga á að kynna þér 2X Virtual Dekstop lausnina betur geturðu sótt þér reynsluútgáfu hér.
Um 2X
2X er fyrirtæki sem einbeitir sér að þróun hugbúnaðar fyrir hinn ört vaxandi markað miðlægrar tölvuvinnslu, þar sem vinnsla notenda fer fram á netþjóni í stað útstöðva (e. server based computing). Slíkar miðstýrðar lausnir ná að hamla sífellt hækkandi kostnaði við rekstur tölvukerfa, einfalda rekstur útstöðva, auka öryggi og afköst og bjóða notendum möguleikann á því að vinna hvar sem er.
Fyrirtæki hafa í auknum mæli verið að nýta sér slíkar miðlægar lausnir, hvort sem netþjónar eru í hýsingu utan fyrirtækis eða staðsettir innan þeirra. Þau vandamál og þær kvartanir notenda sem hafa verið hvað mest áberandi tengjast vinnsluhraða og notendaumhverfinu sem mörgum hefur þótt lítið aðlaðandi. Með því að notast við lausnir frá 2X sjá notendur fram á öruggari og hraðvirkari vinnslu, sem líkist meira því sem þekkist í hefðbundinni vinnslu frá útstöðvum.
Aukin afköst og öryggi
Á meðal þeirra vara sem 2X hefur þróað er léttbiðlaraþjónn (e. Thin Client Server) fyrir bæði Windows og Linux sem eykur afköst í vinnslu umtalsvert og er þess utan fáanlegur á mjög góðu verði í samanburði við svipaðar lausnir. Þjónninn miðstýrir á skilvirkan átt léttbiðlurum og tengingum notenda. Ennfremur er fáanlegur 2X þjónn fyrir Terminal þjónustur sem gerir allar Windows þjónustur aðgengilegar á vélum notenda og lækkar umsýslu og þjónustu við kerfi. Einnig býður fyrirtækið 2X LoadBalancer fyrir Terminal netþjóna sem jafnar álag, eykur öryggi og uppitíma.
2X er ört vaxandi og spennandi fyrirtæki með aðsetur í Þýskalandi, Bretland, Bandaríkjunum, Kýpur og á Möltu. Á bak við fyrirtækið eru starfsmenn með mikla reynslu af þróun og sölu hugbúnaðar. Fyrirtækið er ennfremur í samstarfi við Microsoft, Novell ISV og IBM. Á meðal viðskiptavina 2X má nefna fyrirtæki á borð við BMW (UK), ABN Amro (Ástralía), Abbey National (UK), Toshiba (Kanada) ofl.








