
Þekking á því sem skiptir máli: Sparnaður
Sparnaður er flestum fyrirtækjum hugleikinn þessa dagana og við hjá Þekkingu höfum í okkar vopnabúri ýmsar leiðir til lækkunar á kostnaði fyrirtækja. Ef þú sérð tækifæri til sparnaðar fyrir þitt fyrirtæki með einhverjum af neðantöldum lausnum skaltu hafa samband og saman getum við náð árangri!
Veistu hvað fundurinn kostar??
Kynntu þér fjarfundalausnir Þekkingar
Með fjarfundalausnum Þekkingar geturðu dregið úr ferðakostnaði starfsmanna. Lausnirnar sem við bjóðum eru tvær og finnum við út hvað hentar hverjum viðskiptavini. Um er að ræða afar ódýrar lausnir sem henta allt frá stærstu fyrirtækjum niður í einyrkja . Báðar bjóða þær möguleikann á því að halda kynningu og fundi á einfaldan hátt yfir netið. Hægt er að halda fundi yfir netið með þátttakendum sem ekki eru með kerfið uppsett hjá sér. Einnig er hægt að deila skjáborði (e. Desktop Sharing), sýna video, tala yfir netið (e. VoIP), senda og móttaka skjöl, nýta snarspjall (e. chat), senda kannanir, ofl. ofl.
Ef þú vilt losna við kostnað vegna ferðalaga, nýta tímann betur eða nálgast starfsmenn eða viðskiptavini á einfaldan hátt í gegnum fjarfundabúnað er þetta án efa lausn fyrir þig.
Er ekki kominn tími til að lækka símakostnaðinn??
Leigðu símkerfið af Þekkingu
Kostnaður vegna símanotkunar fyrirtækja vex sífellt. IP kerfisleiga Þekkingar er leið fyrir fyrirtæki til að lækka kostnað verulega um leið og starfsmenn fá aðgengi að öflugra símkerfi. Þar sem símtöl fara í gegnum gagnasambönd fyrirtækisins er hægt að segja upp símalínum og spara þannig kostnað. Starfsmenn erlendis hringja í íslensk númer á innanlandstaxta, hægt er að lækka kostnað umtalsvert með GSM samþættingu og öll símtöl innan fyrirtækis eru gjaldfrjáls. Ennfremur býðst lægri taxti á símtölum í erlend númer.
IP símar nota sömu gagnaflutningssambönd og annar tölvubúnaður. Fjárfestingar í búnaði nýtast því líka fyrir símtölin og samþætting verður á einfaldan hátt möguleg við tölvukerfi fyrirtækisins. Síminn er aðgengilegur hvar og hvenær sem er og hægt er að flytja samtöl á einfaldan máta á milli símstöðvar og GSM síma. Til viðbótar við GSM samþættingarmöguleika er í kerfinu viðveruskráning, fjarfundamöguleiki, skiptiborð, hringihópauppsetning, áframsending símtala auk fleiri lausna sem auka á upplýsingaflæði innan fyrirtækja.
Með símkerfið í kerfisleigu hjá Þekkingu komast fyrirtæki hjá því að fjárfesta í dýrum búnaði. Þekking sér um reksturinn á kerfinu og því er kostnaður lægri og fyrirsjáanlegur auk þess sem einfalt leigumódel hjálpar fyrirtækjum að aðlaga sig að sveiflum í rekstrinum.
Hvað kostar rekstur tölvukerfisins?
Hýstu kerfin þín hjá Þekkingu
Oft er erfitt fyrir fyrirtæki að sjá á eftir tölvukerfinu sínu út úr húsi. Hins vegar hefur á síðustu árum orðið mikil aukning í því að fyrirtæki setji upplýsingakerfi sín í umsjón fagaðila eins og Þekkingar. Kostnaður vegna reksturs, uppbyggingu á kerfisrými og þjónustu við notendur lækkar og með föstu mánaðargjaldi á hvern notanda verður kostnaður fyrirsjáanlegur og öll áætlanagerð einfaldari.
Kerfisleiga Þekkingar er hagkvæm aðferð fyrir fyrirtæki til að koma sér upp öflugum upplýsingakerfum þar sem rekstraröryggi og fyrsta flokks þjónusta er höfð að leiðarljósi. Hug- og vélbúnaður er í eigu Þekkingar og í stað þess að festa kaup á dýrum búnaði, velja viðskiptavinir þær lausnir sem þeim henta best og greiða fast mánaðargjald fyrir. Viðskiptavinir geta fengið aðgang að viðskiptakerfum, hópvinnukerfum og vefjum í gegnum Internetið eða eftir almennum gagnasamböndum.
Innifalið í kerfisleigu er hýsing, rekstur, uppfærslur og öll dagleg umsjón gagna, en það þýðir meðal annars að viðskiptavinurinn hefur ávallt aðgang að nýjustu útgáfum þess búnaðar sem hann kýs að nota. Þannig geta fyrirtæki í kerfisleigu nýtt sér upplýsingatæknina til að skapa sér mikilvægt samkeppnisforskot.
Eru skjöl fyrirtækisins á öruggum stað?
Kynntu þér skjalakerfi Þekkingar
Kostnaður vegna skorts á upplýsingum er oft falinn en umtalsverður hjá fyrirtækjum. Sá tími sem fer í leit að gögnum getur verið fyrirtækjum dýrmætur og eins getur verið bagalegt að endurvinna gögn sem þegar eru til í fórum fyrirtækja. Margvíslegur annar ávinningur er fólginn í því að fyrirtæki taki skjalamál sín föstum tökum. Geymsla og afritun gagna er sífellt að verða stærri hluti af rekstrarkostnaði fyrirtækja og því stuðlar fækkun skjala að lækkun kostnaðar. Betra aðgengi starfsmanna að skjölum eykur ekki einungis framleiðni heldur tryggja skýrar reglur um meðferð skjala aukið öryggi í rekstrinum.
Þekking býður fyrirtækjum og stofnunum kynningu á skjalaráðgjöf þeim að kostnaðarlausu. Skjalastjórn er grunnur að markvissu innra skipulagi upplýsinga og tryggir aukið öryggi mikilvægra skjala um leið það auðveldar starfsmönnum að finna skjöl fljótt og örugglega. Þekking vinnur eftir einfaldri og skilvirkri aðferðarfræði við skjalaráðgjöf.
Bókaðu kynningu hjá okkur!
Kynntu þér málið og bókaðu kynningu hjá okkur, það kostar ekkert að fá kynningarfund og hann er án allra skuldbindinga.








