Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Áframhaldandi samstarf Garðabæjar og Þekkingar Sveitarfélagið Garðabær hefur gert samning við Þekkingu um hýsingu og

Áframhaldandi samstarf Garðabæjar og Þekkingar

Guðjón E. Friðriksson, bæjarritari Garðabæjar, Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar.
Guðjón E. Friðriksson, bæjarritari Garðabæjar, Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar og Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri Garðabæjar.

Sveitarfélagið Garðabær hefur gert samning við Þekkingu um hýsingu og rekstur á tölvukerfi bæjarins. Þekking hf. mun hýsa og annast allan rekstur á miðlægu kerfi sveitarfélagsins . Um er að ræða endurnýjun á eldri samningi, en Garðabær og Þekking eiga að baki langt og farsælt samstarf.

Viðurkenning fyrir Þekkingu

Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar, telur að endurnýjun á samningnum sé mikil viðurkenning fyrir Þekkingu hf. „Garðabær er krefjandi viðskiptavinur enda er þetta metnaðarfullt og framsækið sveitarfélag sem leggur mikið upp úr því að nýta sér upplýsingatæknina sem víðast í rekstrinum. Það er því ákveðinn viðurkenning fyrir okkur hjá Þekkingu að ákvörðun hafi verið tekin um áframhaldandi samstarf í hýsingu og rekstri á kerfi bæjarins og erum við vongóð um að samstarfið verði jafn farsælt og verið hefur síðustu ár.“

Fjölbreyttir möguleikar í rekstrarþjónustu

Á síðust árum hefur Þekking fengið í þjónustu marga ólíka viðskiptavini og hefur það aukið enn á breidd fyrirtækisins í rekstrarþjónustu. Stefán segir það nauðsynlegt fyrir metnaðarfullt fyrirtæki í tölvuþjónustu að geta komið að mörgum ólíkum verkefnum og leyst misjafnar þarfir viðskiptavina. „Við höfum í gegnum tíðina sinnt mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins og höfum nú einnig öflug sveitarfélög og stofnanir í hópi okkar viðskiptavina. Við höfum haft mikla sérhæfingu í rekstri á verslunarkerfum en erum nú með nýjum samningum við stór sveitarfélög komin með nokkra fótfestu á þeim markaði líka. Til viðbótar við okkar stærstu verkefni höfum við síðan með kerfisveitunni hjá okkur getað þjónustað minni fyrirtæki og boðið þeim á hagstæðu verði afar öflugt umhverfi fyrir sitt tölvukerfi. Við lítum svo á að ekkert verkefni sé of stórt eða smátt fyrir okkur og leggjum okkur fram um að leysa þarfir allra okkar viðskiptavina á skjótan og hagkvæman hátt.“

Bjartsýn á gott gengi

Þekking fagnar 10 ára afmæli á árinu, en fyrirtækið var stofnað þann 1. nóvember árið 1999 af KEA og Íslenska Hugbúnaðarsjóðnum. Stefán er bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir erfið skilyrði íslenskra fyrirtækja. „Rekstur Þekkingar hefur gengið vel á undanförnum misserum. Í byrjun störfuðu 10 manns hjá Þekkingu, en við höfum vaxið jafnt og þétt og nú eru starfsmenn í kringum 50. Í dag reyna fyrirtæki og stofnanir hvað þau geta til að draga úr kostnaði og ná fram hagræðingu í rekstri á sínum tölvukerfum. Þar getum við komið að liði. Það hefur orðið aukning í að fyrirtæki útvisti rekstri tölvukerfa sinna til fagaðila eins og okkar og reynslan sýnir að slíkt fyrirkomulag er hagkvæmt og áreiðanlegt. Við ætlum að halda að halda upp á tíu ára afmæli Þekkingar í haust og erum bjartsýn á gott gengi þrátt fyrir tímabundna erfiðleika í íslensku samfélagi.“


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf