
Misstir þú af Convergence eða TechEd ráðstefnunum í nóvember 2009?
Ekki örvænta, því Microsoft Íslandi hefur tekið saman það bitastæðasta frá þessum ráðstefnum og sett saman í einn pakka. Risaráðstefnan „The Best of TechEd & Convergence 2010“ verður haldin á Hilton Nordica Hótel 26.-27. janúar og aðgangur er ókeypis.
Komdu á viðburð ársins fyrir þá sem vilja nýta tæknina til að ná forskoti. Sjáðu hvernig nýjustu tækninýjungarnar geta hjálpað þér og þínu fyrirtæki að ná lengra – með minni tilkostnaði.
Ráðstefnunni er skipt niður í fjórar meginbrautir sem eru sniðnar að mismunandi þörfum upplýsingatæknifólks og stjórnenda í atvinnulífinu. Tæknileg dýpt fyrirlestra er mismunandi, allt frá almennu yfirliti sem hentar vel stjórnendum sem vilja kynna sér helstu möguleika viðkomandi umfjöllunarefnis upp í mjög sérhæfða fyrirlestra sem ætlaðir eru sérfræðingum á viðkomandi sviði.
Ráðstefnan er alfarið framlag Microsoft Íslandi og samstarfsaðila til íslenska upplýsingatæknigeirans, því aðgangur er ókeypis til að tryggja að allir sem áhuga hafa geti nýtt sér þetta tækifæri óháð fjárhag. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að gestir skrái sig á hvern fyrirlestur fyrir sig.
Fyrirlesarar eru flestir erlendir sérfræðingar með mikla reynslu á því sérsviði sem þeir munu fjalla um. Hér er því frábært tækifæri til að kynnast því nýjasta og áhugaverðasta sem í boði var á TechEd og Convergence fyrr í vetur.
Ítarlega dagskrá má finna hér.
Nýttu tækifærið - kynntu þér The Best of TechEd & Convergence 2010. Skráðu þig núna! Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis.








