
Þekking hf. sér um rekstur og viðhald á tölvukerfum fjölda fyrirtækja og stofnana. Umsýsla stórra og flókinna tölvukerfa getur oft verið flókin og vandasamt fyrir kerfisstjóra að hafa yfirsýn yfir þann búnað sem fylgjast þarf með. Í starfi sínu reyna því kerfisstjórar Þekkingar að nýta sér þær lausnir sem einfaldað geta starf þeirra.
Á meðal þeirra lausna sem nýttar eru við umsjón tölvukerfa hjá viðskiptavinum Þekkingar er Microsoft System Center Configuration Manager (SCCM). SCCM er öflugt stjórnunartól frá Microsoft, sem notað er til að stýra dreifingu hugbúnaðarlausna innan fyrirtækja og til að fylgjast með hug- og vélbúnaðarstöðu útstöðva og netþjóna. Með SCCM fæst betri stjórn yfir upplýsingakerfinu og eignum með samtíma uppfærslum á því hvað fyrirtækið á af hugbúnaði og hvernig verið er að nýta hann. SCCM er byggt á Microsoft lausnum og því nýtist vel sú þekking sem þegar er til staðar á kerfum frá Microsoft.
Einfalt og ódýrt
Kunnuglegt Microsoft viðmótið gerir þetta að lausn sem einfalt er að nota og hentar sérlega vel bæði fyrir einsleit Microsoft umhverfi sem og umhverfi með lausnum frá öðrum aðilum. Helsti kostur SCCM fyrir þá sem reka upplýsingakerfi er að það næst fram miðlæg dreifing stýrikerfa og forrita, ásamt uppfærslum, yfir á búnað fyrirtækisins óháð staðsetningu hans. Dreifingin nær yfir allan búnað hvort sem um er að ræða útstöðvar, Windows netþjóna, sýndarvélar eða fjarvinnslutæki eins og t.d. GSM síma.
Það sem framar öðru gerir SCCM að spennandi lausn fyrir fyrirtæki og stofnanir er sú staðreynd að flest fyrirtæki eiga megnið af hugbúnaðarleyfunum í dag. Þeir aðilar sem eru með OVS samninga og greiða svokallað CORE CAL leyfi fá með því réttinn fyrir útstöðvar til að tengjast SCCM kerfinu. Við bætist uppsetning á netþjóni og SCCM netþjónaleyfi sem er ekki hár kostnaður og því er um tiltölulega ódýra lausn að ræða fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana.
Skýrslur og kerfisgreining
Microsoft SCCM er einnig öflugt greiningar- og skýrslutól. Til að mynda er mögulegt að nota SCCM til að greina hvort umhverfi sé tilbúið fyrir ákveðnar uppfærslur, s.s Windows 7, Office 2010 osfrv. Einnig má skilyrða uppsetningar á þann hátt að útstöðvar séu einungis uppfærðar að gefnum ákveðnum skilyrðum, s.s. minniskröfum, stöðu öryggisuppfærsla osfrv. Kerfisstjórum er gert mögulegt að útbúa skýrslur sem segja til um samhæfni forrita, taka saman yfirlit yfir hugbúnaðareign, stýrikerfadreifingu og vinna þar með grunn að áhættumati á tölvukerfi fyrirtækisins. Með öryggisuppsetningu á netkerfi má koma í veg fyrir að vélar geti skráð sig inn á fyrirtækjanet nema að því gefnu að búið sé að setja inn ákveðna öryggispakka osfrv.
Aðstoð við uppsetningu
Ekki er nauðsynlegt að fyrirtæki séu með rekstur sinn í umsjón Þekkingar til að nýta sér þá möguleika og þann sparnað sem næst fram með uppsetningu Microsoft SCCM. Starfsmenn Þekkingar hafa komið að uppsetningu hjá tölvudeildum fyrirtækja og stofnana sem vilja nýta sér lausnina og verið þeim innan handar í innleiðingarferlinu.Kerfið hefur verið uppsett hjá nokkrum af viðskiptavinum fyrirtækisins auk þess sem unnar hafa verið þarfagreiningar með viðskiptavinum til að meta það.
Hafir þú áhuga á að kanna hvort SCCM sé lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki geturðu haft samband við sölusvið Þekkingar í síma 460-3100 eða í gegnum netfangið sala@thekking.is. Hafðu samband og fáðu frían greiningarfund og kynningu á kerfinu.







