Góð þátttaka var á kynningu Þekkingar á Microsoft Dynamics C5 fjárhagskerfinu. Kynningin var haldin í húsnæði Microsoft á Íslandi að Engjateigi 7.
Gunnar Karl Níelsson, frá Microsoft á Íslandi, kynnti framtíðarsýn Microsoft varðandi C5 fjárhagskerfið hvað varðar þróun kerfisins og hlutdeild á íslenskum markaði. Þar kom m.a. fram að Microsoft mun leggja mikla áherslu á að styðja við framþróun kerfisins á Íslandi.
Á eftir Gunnari tók við orðinu Ragnheiður Sigurðardóttir, ráðgjafi frá Þekkingu, og sýndi gestum nýjustu útgáfuna af C5 fjárhagskerfinu og helstu vinnslur í kerfinu. Ný útgáfa mun koma formlega á markað í janúar 2010, en áætlanir Microsoft gera ráð fyrir nýrri útgáfu árlega til ársins 2017.
Að lokum fjallaði Oddur Hafsteinsson, sviðsstjóri ráðgjafa- og sérlausnasviðs Þekkingar, um þjónustu Þekkingar fyrir C5 notendur og kynnti einnig möguleikann á að leigja C5 í hýsingu hjá Þekkingu og spara þar með stofnkostnað í hugbúnaði og vélbúnaði.
Þess má geta að í desember verður sérstakt tilboð á Microsoft Dynamics C5 Light útgáfu kerfisins, en pakkinn mun kosta 39.900,- kr. m. vsk. til áramóta.
Nánari upplýsingar um Microsoft Dynamics C5 fjárhagskerfið veitir Hildur Guðmundsdóttir, hildur@thekking.is.
Nánari upplýsingar um C5 má finna hér.







