föstudagur 19.febrúar 2010

Auðunn Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Þekkingar hf., ásamt Magnúsi Hallbjörnssyni frá Reykjanesbæ.
Þekking tók þátt í „Best of...“ ráðstefnu Microsoft sem haldin var á Hilton Nordica hótel dagana 26-27 janúar sl. Fjöldi gesta heimsótti bás Þekkingar til að spjalla við starfsmenn og kynna sér lausnir fyrirtækisins.
Af þessu tilefni var Þekking með smá happadrætti fyrir gesti í samstarfi við Iceland Express. Í boði var ferð til áfangastaðar Iceland Express, að eigin vali, innan Evrópu.
Sá sem hreppti ferðina var Magnús Hallbjörnsson, forstöðumaður upplýsingatæknimála hjá Reykjanesbæ. Óskum við honum innilega til hamingju og góðrar ferðar.







