
Samningar hafa nú náðst við höfuðstöðvar Microsoft um að áframhald verði á evrugengi Microsoft fram til júníloka. Miðað verður við evrugengið 150 fram til þess tíma.
Nú er svo komið að krónan hefur haldist nokkuð stöðug frá miðju síðasta ári og heldur styrkst síðustu mánuði, sem er vonandi til marks um að efnahagslífið sé farið að ná sér eftir hrunið 2008. En um leið þýðir þessi stöðugleiki að sífellt erfiðara verður að réttlæta sérstakt evrugengi Microsoft hér á landi í samningum við höfuðstöðvar Microsoft. Því virðist á öllu sem þetta verði síðasta framlenging evrugengisins og því muni raungengi krónunnar taka við 1. júlí næstkomandi.
Við hjá Microsoft Íslandi erum mjög stolt af því hvernig þetta verkefni hefur tekist frá desember 2008. Með evrugengi Microsoft tókst að hlífa okkur öllum við versta skellinum sem varð við hrun krónunnar og halda markaðnum gangandi á erfiðum tímum.
Við viljum líka nota tækifærið til að þakka samstarfsaðilum Microsoft sérstaklega fyrir gott starf á meðan á þessu sérstaka ástandi í íslensku efnahagslífi hefur staðið. Nú er um að gera að nýta síðustu mánuði evrugengisins sem best og að sjálfsögðu vonast til að sjálf íslenska krónan haldi áfram að styrkjast þannig að viðbrigðin verði sem minnst þegar Microsoft tekur aftur upp raungengið þann 1. Júlí.








