Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Hafnarfjarðarbær semur við Þekkingu hf. um afritun gagna Hafnarfjarðarbær hefur í framhaldi af verð- og gæðakönnun samið við Þekkingu hf. um

Hafnarfjarðarbær semur við Þekkingu hf. um afritun gagna

Mynd frá undirskrift samningsins, Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar, og Sigurður Barði Jóhannsson, deildarstjóri tölvudeildar Hafnarfjarðarbæjar,  ásamt starfsmönnum frá Þekkingu og tölvudeild Hafnafjarðabæjar.
Mynd frá undirskrift samningsins, Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar, og Sigurður Barði Jóhannsson, deildarstjóri tölvudeildar Hafnarfjarðarbæjar, ásamt starfsmönnum frá Þekkingu og tölvudeild Hafnafjarðabæjar.

Hafnarfjarðarbær hefur í framhaldi af verð- og gæðakönnun samið við Þekkingu hf. um afritunarþjónustu tölvugagna.  Samningurinn felur í sér að Þekking mun annast afritun á helstu gagnagrunnum og kerfum bæjarins. Um er að ræða fjarafritun í gegnum gagnasamband.

Sigurður Barði Jóhannsson, deildarstjóri tölvudeildar Hafnarfjarðarbæjar, segir að bærinn hafi ákveðið að leita eftir þessari þjónustu til þess að tryggja enn frekar öryggi gagna, en Þekking notar afritunarlausnina Tivoli Storage Manager frá IBM sem er einn fullkomnasti afritunarhugbúnaðurinn á markaðnum.  Þekking hf. varð fyrir valinu á grundvelli verðs og gæða.

Stefán Jóhannesson, framkvæmdastjóri Þekkingar hf., segir það mikla viðurkenningu að Hafnarfjarðarbær hafi valið Þekkingu sem sinn samstarfsaðila í afritunarmálum.  „Fyrirtæki og stofnanir eru alltaf að átta sig betur á mikilvægi þess að afritun gagna sé bæði örugg og skilvirk. Með því að leita aðstoðar fyrirtækis eins og okkar, sem sérhæfir sig í þessum málum, næst fram aukin hagræðing á sama tíma og viðskiptavinurinn eykur til muna öryggi gagna sinna. Við lítum á val Hafnarfjarðar sem viðurkenningu á því starfi sem við höfum unnið sl. ár í afritunarmálum, en mikil áhersla hefur verið lögð á að auka gæði lausna Þekkingar ásamt því að bjóða áfram hagstæð verð.“

Þekking er vottað samkvæmt ISO 27001 öryggisstaðlinum og býður uppá fjölbreytta þjónustu á sviði reksturs og hýsingar tölvukerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir.  Þekking hefur haslað sér völl á sviði hýsingar- og rekstrarþjónustu tölvukerfa ásamt ýmissi sérfræðiþjónustu um allt land. Í dag rekur fyrirtækið tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Kópavogi, með um 50 starfsmenn.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf