Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Hefur þú kynnt þér Microsoft CRM? Á síðustu misserum hefur Þekking hf. tekið að sér í auknum mæli

Hefur þú kynnt þér Microsoft CRM?

Á síðustu misserum hefur Þekking hf. tekið að sér í auknum mæli uppsetningu og umsýslu með CRM hugbúnaði fyrir viðskiptavini, en Microsoft CRM lausnin hefur verið sett upp hjá nokkrum af viðskiptavinum fyrirtækisins. Þarfir viðskiptavina eru mismunandi og óhætt er að segja að ekki sé til ein lausn sem hentar öllum. Þekking hf. hefur hins vegar séð mikinn ávinning fyrir viðskiptavini í Microsoft CRM kerfinu, bæði hvað varðar möguleika lausnarinnar og hagstætt verð hennar.

Microsoft CRM hentar einstaklega vel til að halda utan um samskipti við viðskiptavini, hvort sem um er að ræða sölutengd mál, verkefni, ábendingar eða önnur þau samskipti sem eiga sér stað á milli fyrirtækis og skjólstæðinga þess. Lausnin miðar að því að hækka þjónustustig fyrirtækja með því að veita starfsmönnum betri yfirsýn yfir þau verkefni sem eru í gangi. Umsýsla með sölu- og markaðstækifærum verður ennfremur mun markvissari. Hér að neðan eru nokkrar viðbótar ástæður fyrir því afhverju fyrirtæki ættu að taka Microsoft CRM til skoðunar.

Microsoft / Outlook tenging:
Þó mörg kerfi á markaðnum bjóði upp á tengingu við hið vinsæla póstforrit Outlook þá er vafalítið ekkert forrit sem býður jafn góða samhæfingu og Microsoft CRM. Möguleikinn að vista pósta með viðhengjum í CRM kerfinu og kunnuglegt Microsoft viðmótið eru góðar ástæður fyrir því að skoða MS CRM.

Kostnaður við kerfið:
Ýmsar leiðir eru til þess að halda kostnaði í lágmarki við innleiðingu á Microsoft CRM sem gerir það að hagkvæmri lausn fyrir stór og smá fyrirtæki. Hægt er að bjóða kerfið í hýsingu, lágmarka stofnkostnað með leigusamningi auk þess samhæfing við núverandi Microsoft kerfi fyrirtækja getur leitt til lægri kostnaðar á viðbótarlausnum.

Aðlaganir og samþætting:
Í Microsoft CRM er nú þegar innbyggð tenging við önnur kerfi frá fyrirtækinu og þar fyrir utan eru allar breytingar og viðbætur einfaldar í .net umhverfinu. Forritarar Þekkingar hf. geta komið að ýmsum lausnum með viðskiptavinum sem miða að því að nýta kerfið enn frekar en grunnur þess gerir ráð fyrir. Kerfið getur m.a. nýst sem verkbeiðnakerfi, tengst á einfaldan hátt fjárhags og samskiptakerfum o.s.frv. 

Hafðu samband við sölusvið Þekkingar og bókaðu kynningu á Microsoft CRM: http://thekking.is/fs_kynning/  


moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf