
Undanfarin ár hefur hópur starfsmanna Þekkingar á Akureyri tekið þátt í átakinu hjólað í vinnuna. Árið í ár er engin undantekning og stefnan er að slá fyrra met sem er 141 km.
Á myndinni hér til hliðar má sjá hluta af hópnum samankominn. Eins og sjá má þá viðraði ekki sérlega vel við myndatökuna. En starfsmenn Þekkingar eru alvöru víkingar sem víla ekki fyrir sér að skella sér á hjólið hvernig sem viðrar.
Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarátakinu “Hjólað í vinnuna”. Megin markmið átaksins er að vekja athygli á hjólreiðum sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta.
Nánari upplýsingar um þetta framtak er að finna á http://hjoladivinnuna.is/








