fimmtudagur 29.apríl 2010

Þekking verður með hádegiskynningu á Microsoft Dynamics C5 bókhaldskerfinu á Hótel KEA miðvikudaginn 5 maí. Um er að ræða stutta og hnitmiðaða kynningu á helstu eiginleikum C5 bókhaldskerfisins og þjónustu Þekkingar fyrir notendur kerfisins.
Hvetjum alla áhugasama til að mæta og þiggja hádegissnarl í leiðinni.
Hægt er að skrá sig á kynninguna með því að smella hér.
-
Staður: Hótel KEA á Akureyri
-
Dagur: Miðvikudagurinn 5 maí
-
Tími: 12.00 – 13.30
C5 er þrautreynt kerfi með yfir 80 þúsund notendur. Um er að ræða öflugt og hagkvæmt bókhaldskerfi sem hentar jafnt fyrir einyrkja sem og smærri og meðalstór fyrirtæki. Nánari upplýsingar um kerfið má finna hér.
Nánari upplýsingar um C5 veiti Hildur Camilla Guðmundsdóttir í síma 460 3100 eða hildur@thekking.is







