
Þekking hefur hafið sölu og þjónustu á Microsoft Dynamics C5 fjárhagskerfinu. C5 er þrautreynt fjárhagskerfi sem hefur verið í stöðugri þróun í yfir 14 ár. Kerfið hefur hingað til einungis verið til sölu í Danmörku en hefur nú verið aðlagað að íslenskum markaði. C5 er gríðarlega útbreitt og vinsælt í Danmörku en þar hafa verið seld yfir 75 þúsund kerfi.
Stöðug framþróun
C5 er hluti af Dynamics línu fjárhagskerfa frá Microsoft. Microsoft hefur ákveðið að leggja mikla vinnu í framþróun kerfisins og er þegar búið að gefa út þróunarplan lausnarinnar til ársins 2018. Næsta útgáfa af C5 fjárhagskerfinu verður sett á markað í lok þessa árs. Þekking mun annast sölu og þjónustu fyrir C5 og nú þegar hefur fjöldi kerfa verið innleidd. C5 hentar sérstaklega vel fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og er selt á einstaklega hagkvæmu verði.
Microsoft C5 tryggir góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins. Grunnútgáfa hugbúnaðarins inniheldur m.a. fjárhag, sölu, innkaup og fleira. Hægt er að bæta við öðrum kerfiseiningum og virkni eftir þörfum og starfsemi fyrirtækisins.
Smelltu hér til að sækja kynningarbækling um C5.
Þekking býður uppá:- Sala á leyfum
Fáðu tilboð frá okkur í C5 pakka sem hentar þínum þörfum - Kerfisleiga
Enginn stofnkostnaður í leyfum. Greitt er mánaðarlegt gjald sem innfelur hýsingu og afritun á hugbúnaðinum ásamt leyfis og uppfærslugjöldum - Aðlaganir
Þekking getur smíðað aðlaganir í kerfið sem ekki fylgja með staðlaðri útgáfu - Ráðgjöf og námskeið
Þekking veitir ráðgjöf varðandi innleiðingu og notkun kerfisins auk námskeiða fyrir notendur - Þjónustuver
Þjónustuver Þekkingar leysir vandmál sem koma upp við daglega notkun kerfisins
Hafðu samband
Bókaðu kynningu hjá okkur með því að hafa samband við söludeild Þekkingar í síma 460-3100 eða sendu fyrirspurn á sala@thekking.is








