Þekking hf. er sölu- og þjónustuaðili fyrir C5 bókhaldskerfið frá Microsoft. Nú í haustbyrjun mun Þekking bjóða C5 í kerfisleigu. Í þessu felst að nýir notendur að kerfinu geta leigt kerfið og hýst hjá Þekkingu. Um er að ræða sérstakt leyfisfyrirkomulag sem Microsoft bíður í gegnum viðurkennda samstarfsaðila eins og Þekkingu.
Þessi leyfisleið er tvímælalaust góður valkostur fyrir fyrirtæki sem vilja lágmarka fjárbindingu í hugbúnaðarleyfum og tengdum búnaði.
Enginn stofnkostnaður í hugbúnaðarleyfum
Fyrirtæki þurfa ekki að greiða neinn stofnkostnað í leyfunum sjálfum heldur greiða þau einungis mánaðarlegt gjald í samræmi við notkun þeirra hverju sinni. Innifalið í C5 leigunni eru allar uppfærslur á kerfinu, þannig að ekki þarf að greiða sérstakan uppfærslusamning til að eiga rétt á nýjum útgáfum.
Enginn stofnkostnaður í vélbúnaði
Annar stór kostur við það að leigja leyfin er að hugbúnaðurinn og þau gögn sem honum fylgja eru hýst í öruggu og vöktuðu umhverfi hjá Þekkingu. Sömuleiðis eru öll gögn afrituð hjá Þekkingu. Notendur þurfa því ekki að fjárfesta sérstaklega í vélbúnaði né hafa áhyggjur af afritatöku.
Aðgengi hvar og hvenær sem er
Notendur fá aðgang að kerfinu í gegnum terminal server client, þannig geta t.d. notendur með ferðavélar unnið í kerfinu hvar og hvenær sem er svo lengi sem þeir eru í netsambandi.
Um C5
Nánari upplýsingar um C5 má finna með því að smella hér. Einnig má hafa samband við Hildi Camillu Guðmundsdóttur í síma 460-3100 eða hildur@thekking.is varðandi leyfisleiðir og tilboð.







