Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Nokkrar góðar ástæður fyrir vali á Office 2010 Í maímánuði var fyrirtækjum sem hafa leyfissamning við Microsoft veittur aðgangur að nýjustu útgáfu

Nokkrar góðar ástæður fyrir vali á Office 2010

Í maímánuði var fyrirtækjum sem hafa leyfissamning við Microsoft veittur aðgangur að nýjustu útgáfu Office hugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Office 2010 bíður uppá margvíslegar skemmtilegar nýjungar sem vert er að kynna sér. Hér eru 5 góðar ástæður fyrir vali á Office 2010.

1. Öflugri hönnunarmöguleikar

Office 2010 býður fjölda hönnunarmöguleika sem gefa notendum færi á að glæða efni sitt lífi og gefa því faglegt útlit. Þar á meðal er endurbætt myndaaðlögun (Picture Formatting), sniðmát (themes) og enn  öflugri möguleika í kringum SmartArt sem margir þekkja frá 2007 útgáfunni.

2. Betri árangur með samvinnu

Office 2010 er öflugt tól til að nota í hugmyndavinnu og heldur öllum skjölum samhæfðum í nýjustu úgáfu. Hægt er að vinna samtímis í Word, Power Point og Excel og geta því margir notendur unnið að sama skjalinu og eru breytingar aðgengilegar og uppfærðar samtímis fyrir alla notendur.

3. Nýttu þér kunnuglegt viðmótið hvar sem er

Með Office 2010 gefst notendum færi á að vinna hvar og hvenær sem er.

Office Web Apps – Hægt er að flytja vinnu notenda áfram út á vefinn með tengingu Word, Excel, Power Point og OneNote við Office Web Apps. Skjöl verða þá aðgengileg nánast hvar sem er og hvenær ser er.

Office Mobile 2010 – Með aðgengi að hugbúnaðarvöndlinum í símanum geta notendur með Windows Mobile síma sinnt sínum verkefnum á ferðinni  á einfaldan og öruggan hátt.

SharePoint Workspace 2010 – Hægt er að tengja saman lista og söfn úr SharePoint við SharePoint Workspace sem áður var þekkt undir Groove nafninu. Með Workspace geta notendur unnið í SharePoint hvar sem er og allt efni uppfærist á milli kerfa þegar notandi kemst aftur í netsamband.

4. Skilvirkari vinnubrögð með Backstage

Office Backstage tekur við af hinni hefðbundnu File valmynd og tekur saman á einfaldan hátt og á einn stað helstu boðskipanir notenda s.s. vistun, prentun, dreifingu og útgáfu. Fljótlegt aðgengi í gegnum Backstage valmyndina einfaldar til muna vinnslu í Office hugbúnaðinum, eykur hraða í vinnslu og þar með framleiðni notenda.

5. Einfaldara og hraðara Microsoft Outlook

Með sífellt stækkandi pósthólfum og auknu áreiti tölvupósta eykst þörfin fyrir einfaldleika í póstumsýslu. Outlook 2010 þjappar saman löngum lista tölvupósta í færri samtöl sem hægt er að flokka, forgangsraða og skjala á einfaldan máta. Quick Steps möguleikinn veitir ennfremur auðvelt aðgengi að helstu skipunum s.s. svörun tölvupósta og eyðingu (reply / delete osfrv.).

Hér eru einungis nefnd fimm dæmi en fjöldi viðbótarmöguleika fylgja 2010 útgáfunni af Office, s.s öflugra Power Point, endurbættar lausnir í Excel osfrv.

Fáðu nánari upplýsingar um hvernig þú getur nálgast Office 2010 á sem hagkvæmastan máta hjá sölusviði Þekkingar, sala@thekking.is



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf