
Í maímánuði var fyrirtækjum sem hafa leyfissamning við Microsoft veittur aðgangur að nýjustu útgáfu Office hugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Við sama tækifæri gaf Microsoft út 2010 útgáfuna af SharePoint hópvinnukerfinu en saman eru þessar lausnir sérhannaðar til að auka framleiðni og hagkvæmni, m.a. með notkunarmöguleikum á Internetinu og í farsímum.
Áframhald á öflugri þróun
Með útgáfunum er komin út ný kynslóð algengustu skrifstofuforrita sem notuð eru í heiminum; forrita á borð við ritvinnsluforritið Word, töflureikninn Excel, glæruforritið PowerPoint og samskiptaforritið Outlook, svo nokkur séu nefnd. Með þessari nýjustu útgáfu heldur Microsoft áfram öflugri þróun Office-forritanna, en fyrirtækið gerði umfangsmiklar breytingar á þeim með síðustu útgáfu, Office 2007.
Microsoft hefur lagt mikla áherslu á að þróa hugbúnaðinn í samvinnu við viðskiptavini og notendur. Til marks um það má nefna að þrefalt fleiri notendur tóku þátt í Beta-prófunum Office 2010 og SharePoint 2010 heldur en sambærilegum prófunum á Office 2007 sem gerir það jafnframt að verkum að nú þegar nota 8,6 milljónir manna um heim allan Office 2010. Von er á útgáfu Office 2010 á neytendamarkaði í júní og um leið verður Office Web Apps,sem er frí vefútgáfa af helstu Office forritum, gerð aðgengileg fyrir almenning.
Nýjar útgáfur
Til viðbótar við nýju vefútgáfuna hafa verið gerðar breytingar á þeim hugbúnaðarpökkum sem í boði eru fyrir viðskiptavini. Má þar m.a. nefna nýja útgáfu, Office Starter 2010, sem kemur í stað Microsoft Works og mun fylgja flestum nýjum vélum frá stærstu vélbúnaðarframleiðendum á borð við IBM, Dell og HP. Markmiðið með nýjum og færri útgáfum er að einfalda vöruframboðið og valkostina fyrir viðskiptavini. Ennfremur mun nú OneNote hugbúnaðurinn fylgja með öllum pökkum. Microsoft hefur einnig uppfært Office útgáfuna fyrir farsíma, Office Mobile 2010, sem verður gefin út fyrir Windows síma sem keyra Windows Mobile útg. 6.5 og Windows 7 síma.
Office útgáfur
Office Professional verður áfram í boði og hentar stærri fyrirtækjum. Um tvær mismunandi professional útgáfur er að ræða. Annars vegar Professional Plus sem inniheldur allan hugbúnað Office vöndulsins, þ.m.t. InfoPath, SharePoint Workspace (áður Groove) og Office Communicator. Plus útgáfan er einungis aðgengileg í gegnum leyfissamninga (Volume licensing). Hin útgáfan Professional (standard) inniheldur Excel, Word, Power Point, Outlook, Publisher og Access. Sá munur er einnig á útgáfunum að Plus útgáfan veitir aðgengi að Office Web Apps, þ.e. samhæfingu við veflausnina fyrir fyrirtæki.
Hin vinsæla Office Home and Student útgáfa (Microsoft selur eina útgáfu á hverjum 20 sekúndum í Bandaríkjunum) verður áfram í boði en tekur smávægilegum breytingum. Útgáfan inniheldur nú Excel, PowerPoint, Word og OneNote.
Við flóruna bætist ný útgáfa, Office Home and Business, sem miðar eins og nafnið gefur til kynna við heimavinnandi fyrirtækjanotendur. Þessi útgáfa tekur að mestu við af Standard og Business útgáfunum og inniheldur Excel, Outlook, PowerPoint, Word og OneNote. Innan leyfissamninga verður svo standard útgáfa áfram í boði og bætist þá við aðgengi í Web Apps og Publisher hugbúnaðurinn.
Þekking á Office 2010
Starfsmenn Þekkingar hf. hafa kynnt sér Office 2010 hugbúnaðarpakkann vel og þekkja bæði notkunarmöguleika sem og leyfismál til hlítar. Hafir þú eða þitt fyrirtæki áhuga á því að fá frekari upplýsingar um Office hugbúnaðinn geturðu haft samband við Þekkingu og við veitum þér faglega og góða ráðgjöf um það hvort uppfærsla í Office 2010 hentar þér.
Við getum boðið þjónustu sem hentar þínum þörfum, hvort sem um ræðir leyfismál, uppsetningu eða kennslu á Microsoft Office 2010. Hafðu samband við sölusvið Þekkingar í gegnum netfangið sala@thekking.is og bókaðu kynningu hugbúnaðinum.







