fimmtudagur 07.júní 2012
Fyrir þá viðskiptavini sem vilja tryggja öruggt aðgengi að
gögnum fyrirtækisins hvaðan sem er býður Þekking hf. upp á öryggisgátt fyrir
spjaldtölvur og farsíma.
Sífelld aukning er innan fyrirtækja á notkun
spjaldtölva og starfsfólk vill í auknum mæli nýta sér þá möguleika sem nútíma
tækni veitir varðandi fjarvinnslu. Með aukningu á notkun slíkra tækja vex
krafan um öryggi því er mikilvægt að tryggt sé að allar netgáttir séu varðar og
öryggi gagna fyrirtækisins tryggt. Sú krafa starfsfólks er alltaf að aukast að
gögn og kerfi séu aðgengileg hvar og hvenær sem er og Þekking leggur sitt af
mörkum til að auka öryggi og einfalda aðgengi fyrirtækja að kerfum sínum.
Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á lausn sem byggir á Cisco anyconnect lausninni. Við hvetjum fyrirtæki til að hafa samband við sína tengilið og kerfisstjóra og fá upplýsingar um þá möguleika sem í boði eru varðandi öryggistengingar fyrir síma og spjaldtölvur.
Kynningu á lausninni frá Cisco má sjá hér: http://www.cisco.com/assets/sol/sec/flash/anyconnect/index.html