þriðjudagur 05.janúar 2010
Rafmagnslaust varð í Breiðholti og hluta Kópavogs um þrjú leytið í gær, þ. 4 janúar. Stóð rafmagnsleysið í um tíu mínútur. Háspennubilun varð í rafstöðinni í Urriðaholti en bilun varð í spenni hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Bilunin gerði það að verkum að rafmagn fór af húsnæði Þekkingar í Kópavogi. Varaaflgjafi og rafstöð í vélasal Þekkingar komu í veg fyrir að viðskiptavinir í hýsingu yrðu fyrir truflunum.







