Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Ríkiskaup velur Þekkingu hf Undanfarin 2 ár hefur Þekking verið söluaðili í rammasamningi ríkiskaupa fyrir rekstrar og hýsingarþjónustu tölvukerfa. Nú í

Ríkiskaup velur Þekkingu hf

Undanfarin 2 ár hefur Þekking verið söluaðili í rammasamningi ríkiskaupa fyrir rekstrar og hýsingarþjónustu tölvukerfa. Nú í sumar fór fram nýtt útboð hjá Ríkiskaupum fyrir þessa tilteknu þjónustu og varð Þekking aftur fyrir valinu.

Þekking verður því viðurkenndur söluaðili fyrir opinberar stofnanir og fyrirtæki í öllum þjónustuflokkum sem voru boðnir út:

  1. Hefðbundin hýsing 
  2. Aðgengi að þjónustuborði
  3. Viðvera 
  4. Gagnahýsing 
  5. Afritunarþjónusta
  6. Útstöðvaþjónusta 
  7. Póstþjónusta
  8. Streymun

Að auki er Þekking staðfestur söluaðili í rammasamningi Ríkiskaupa fyrir Microsoft hugbúnað og leyfissaminga sem og ráðgjafaþjónustu á sviði upplýsingatækni.

Í gegnum rammasamninginn geta ríkistofnanir nú leitað beint til Þekkingar varðandi þjónustu og lausnir sem falla undir alla ofangreinda flokka.

Tilgangur rammasamningsins er að afla ríkisstofnunum og ríkisfyrirtækjum hagstæðra kjara á sviði UT lausna.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf