Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Ruslpóstur – ört vaxandi vandamál Ruslpóstur er sífellt að aukast og ekkert útlit er fyrir að á næstunni dragi

Ruslpóstur – ört vaxandi vandamál

Ruslpóstur er sífellt að aukast og ekkert útlit er fyrir að á næstunni dragi úr aukningunni. Talið er að vel yfir 90% þeirra pósta sem sendir eru yfir netið séu skilgreindir sem ruslpóstur (SPAM). Síðustu ár hefur orðið vart við gríðarlega aukningu á ruslpósti og álag á ruslpóstsíur aukist talsvert.

Hér að neðan er tölfræði yfir áætlaða aukningu ruslpósts á heimsvísu frá árinu 2002:

  • 2002 - 2.4 milljarðar ruslpósta á dag
  • 2004 - 11 milljarðar ruslpósta á dag 
  • 2005 - 30 milljarðar ruslpósta á dag
  • 2006 - 55 milljarðar ruslpósta á dag
  • 2007 - 90 milljarðar ruslpósta á dag 
  • 2007 - 100 milljarðar ruslpósta á dag

 

Þekking hf. býður viðskiptavinum sínum upp á öfluga síun á tölvupósti og hefur síðustu ár verið mikið lagt upp úr því að efla síuna. Þrátt fyrir öflugar póstsíur er alltaf hætta á því að óæskilegur póstur sleppi inn í pósthólf notenda. Góð regla er að opna ekki hlekki úr póstum nema að notandi sé viss um hver sendandinn sé. Einnig er mikilvægt að vírusvarnir séu uppfærðar reglulega auk þess sem mikilvægt er að skrá ekki tölvupósthólf að óþörfu.

 

Ráðgjafar Þekkingar geta boðið umsjónarmönnum tölvukerfa upp á ýmsar lausnir í baráttunni við ruslpóst. Á meðal þess sem hægt er að skoða er öflug vírusvörn (s.s. Microsoft Forefront eða Avast), póstsíun Þekkingar og ráðleggingar til notenda í sambandi við umsýslu tölvupósts.

 

Hafir þú áhuga á að fá kynningu á öryggislausnum Þekkingar getur þú haft samband við okkur í gegnum netfangið sala@thekking.is.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf