
Þekking hefur að undanförnu unnið við innleiðingar og ráðgjöf fyrir System Center Configuration Manager (SCCM) lausnina frá Microsoft. Kerfið hefur verið uppsett hjá nokkrum af viðskiptavinum fyrirtækisins auk þess sem innleiðing þess er til skoðunar hjá ýmsum viðskiptavinum.
Um er að ræða geysiöflugt stjórnunartól frá Microsoft, sem notað er til að stýra dreifingu hugbúnaðarlausna innan fyrirtækja og til að fylgjast með hug- og vélbúnaðarstöðu útstöðva og netþjóna. Með SCCM fæst betri stjórn yfir upplýsingakerfinu og eignum með samtíma uppfærslum á því hvað fyrirtækið á af hugbúnaði og hvernig verið er að nýta hann.
SCCM er byggt á Microsoft lausnum og því nýtist vel sú þekking sem þegar er til staðar á kerfum frá Microsoft. Kunnuglegt Microsoft viðmótið gerir þetta að lausn sem einfalt er að nota og hentar sérlega vel bæði fyrir einsleit Microsoft umhverfi sem og umhverfi með lausnum frá öðrum aðilum. Helsti kostur SCCM fyrir þá sem reka upplýsingakerfi er að það næst fram miðlæg dreifing stýrikerfa og forrita, ásamt uppfærslum, yfir á búnað fyrirtækisins óháð staðsetningu hans. Dreifingin nær yfir allan búnað hvort sem um er að ræða útstöðvar, Windows netþjóna, sýndarvélar og fjarvinnslutæki eins og t.d. GSM síma.
SCCM er einnig öflugt greiningar- og skýrslutól. Til að mynda er mögulegt að nota SCCM til að greina hvort umhverfi sé tilbúið fyrir ákveðnar uppfærslur, s.s Windows 7, Office 2010 osfrv. Einnig má skilyrða uppsetningar á þann hátt að útstöðvar séu einungis uppfærðar að gefnum ákveðnum skilyrðum, s.s. minniskröfum, stöðu öryggisuppfærsla osfrv. Ennfremur er hægt að útbúa skýrslur sem segja til um samhæfni forrita, yfirlit yfir hugbúnaðareign, stýrikerfadreifingu og áhættumat á umhverfi tölvukerfisins. Með öryggisuppsetningu á netkerfi má koma í veg fyrir að vélar geti skráð sig inn á fyrirtækjanet nema að því gefnu að búið sé að setja inn ákveðna öryggispakka osfrv.
Það sem framar öðru gerir SCCM að spennandi lausn fyrir fyrirtæki og stofnanir er sú staðreynd að flest fyrirtæki eiga megnið af hugbúnaðarleyfunum í dag. Þeir aðilar sem eru með OVS samninga og greiða svokallað CORE CAL leyfi fá með því réttinn fyrir útstöðvar til að tengjast SCCM kerfinu. Við bætist uppsetning á netþjóni og SCCM netþjónaleyfi sem er ekki hár kostnaður og því er um tiltölulega ódýra lausn að ræða fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana.
Hafir þú áhuga á að kanna hvort SCCM sé lausn fyrir þig og þitt fyrirtæki geturðu haft samband við sölusvið Þekkingar í síma 460-3100 eða í gegnum netfangið sala@thekking.is. Hafðu samband og fáðu frían greiningarfund og kynningu á kerfinu.







