
Brátt hefst mikil knattspyrnuveisla í Suður Afríku. Af því tilefni ætlum við hjá Þekkingu að efna til samkeppni fyrir alla sem hafa áhuga.
Keppnin er mjög einföld. Einungis þarf að spá um hvaða land muni standa upp sem sigurvegari á mótinu. Í verðlaun er 10.000 kr. gjafabréf á góðum veitingastað. Giski fleiri en einn þátttakandi á rétta landið munum við draga út einn sigurvegara.
Þeir sem vilja taka þátt mega senda okkur tölvupóst á netfangið hm2010@thekking.is með sinni spá um hver verði heimsmeistari í knattspyrnu 2010.
Við höfum útbúið excel skjal þar sem hægt er að spá fyrir um úrslit allra leikjanna. Tilvalið ef fólk er að keppa sín á milli í getspeki. Skjalið má sækja með því að smella hér.
Þekking hefur einnig útbúið veggspjald sem sem hægt er að hengja upp og skrá úrslit leikja. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við tengilið sinn hjá Þekkingu ef þeir vilja fá veggspjaldið sent til sín. Einnig er hægt að sækja það í afgreiðslu Þekkingar í Hlíðasmára 11 í Kópavogi og Hafnarstræti 93-95 á Akureyri, með því að smella hér má sjá hvernig veggspjaldið lítur út.
Góða skemmtun :-)







