Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga Nýverið fór fram árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga

Þekking á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga

Nýverið fór fram árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga á Hilton Hótel Nordica í Reykjavík. Þekking var með kynningarbás á ráðstefnunni þar sem fyrirtækið kynnti þjónustu sína fyrir gestum ráðstefnunnar.  Alls tóku um 360 sveitarstjórnarmenn og starfsmenn sveitarfélaga þátt í ráðstefnunni og er það svipaður fjöldi og verið hefur undanfarin ár.

Á ráðstefnunni fluttu m.a. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra ávörp og sat Steingrímur fyrir svörum að ávarpi hans loknu.

Þekking hf. á fjölda viðskiptavina í hópi sveitarfélaga sem sækja mismunandi þjónustu og lausnir til fyrirtækisins.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf