
Þekking býður bæði sölu og ráðgjöf í tengslum við Lotus Notes.
Mörg fyrirtæki eru með uppsettan Domino netþjón hjá sér og nota svo lausnir frá þriðja aðila til að nálgast tölvupóst í síma. Við hvetjum fyrirtæki til að kynna sér Notes Traveler lausnina, en hún fylgir FRÍTT með Domino Server.
IBM® Lotus Notes® Traveler hugbúnaðurinn veitir auðvelt aðgengi að tölvupósti (með viðhengjum), dagatali, tengiliðalista, verkefnalista ofl. fyrir Lotus Notes símanotendur. Lausnin er afar hentug fyrir þau fyrirtæki og stofnanir sem vilja að starfsmenn hafi aðgengi að upplýsingum hvar og hvenær sem er í gegnum símtæki sín.
Sem fyrr segir þá er lausnin ókeypis fyrir þau fyrirtæki sem eru með Domino netþjónaleyfi í dag. Starfsmenn Þekkingar geta aðstoðað fyrirtæki við uppsetningu á lausninni bæði á netþjóni og í símtækjum viðskiptavina. Ennfremur getum við veitt ráðgjöf varðandi þau símtæki sem best henta með lausninni.
Hafir þú áhuga á að fá frekari upplýsingar um Notes Traveler lausnina eða aðrar Notes lausnir geturðu haft samband við ráðgjafa Þekkingar hf. í gegnum netfangið sala@thekking.is eða í s. 460-3100.
Hér er hægt að sækja upplýsingar um Notes Traveler lausnina:
http://www-01.ibm.com/software/lotus/products/notes/traveler.html
Hagstæð verða á Notes leyfum og fagleg þjónusta við Notes hugbúnaðinn
Við bjóðum hagstæð verð á Notes leyfum og hvetjum fyrirtæki og stofnanir til að leita sér tilboða í leyfissamning hjá okkur. Ennfremur bjóðum við ýmsa þjónustupakka og persónulega og góða þjónustu sem hentar jafnt stórum sem smáum aðilum.
Hafðu samband við okkur ef þú hefur áhuga á að kynna þér málið betur.







