miðvikudagur 07.október 2009

Þekking hefur fengið sérstaka vottun frá Microsoft sem endursöluaðili fyrir Microsoft skólasamninga, s.k. Academic endursöluaðili.
Þekking hefur til margra ára annast Microsoft leyfissölu og ráðgjöf fyrir fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Sömuleiðis annast Þekking umsýslu Microsoft leyfa og samninga fyrir fjöldann allan af skólum. Þessi vottun staðfestir þá breidd og þekkingu sem sérfræðingar Þekkingar hafa á Microsoft leyfismálum.
Nánari upplýsingar veitir Auðunn Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Þekkingar, audunn@thekking.is eða 460 3100.








