
Þekking tók nýlega þátt í útboði á vegum Ríkiskaupa um aðild að rammasamningi fyrir ráðgjöf í upplýsingatækni. Skemmst er frá því að segja að Þekking hlaut aðild að viðkomandi samningi.
Forsendur útboðsins voru fjórar:
- Þörf ríkisins fyrir hágæða ráðgjafaþjónustu
- Þörf fyrir fjárhagslega hagkvæmni og upplýsingar um verð og framboð
- Nauðsyn þess að gefa öllum ráðgjöfum jafnan rétt og jöfn tækifari til keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu.
- Þörf fyrir jafnræði og gagnsæi í vali á ráðgjafaþjónustu
Samningurinn er til eins árs með heimild til framlengingar um 2x 1 ár.
Samningurinn hefur það í för með sér að ríkistofnanir og ríkisfyrirtæki geta leitað til Þekkingar varðandi margvíslega ráðgjöf á sviði upplýsingatækni.
Kaup á ráðgjöf og fjölbreytileiki hennar, hjá opinberum stofnunum hefur verið töluverð á undanförnum árum. Ríkisstofnanir kaupa í ríkara mæli margvíslega þjónustu af sjálfstætt starfandi sérfræðingum svo sem bókhald og kennslu. Ennfremur kaupir hið opinbera margvíslega ráðgjöf sérfræðinga eins og viðskiptafræðinga, lögfræðinga, verkfræðinga, tölvunarfræðinga og arkitekta i tengslum við nánar afmörkuð verkefni. Oftast er það vegna þess að viðkomandi stofnun býr ekki yfir þeirri sérfræðiþekkingu sem leitað er eftir eða að þörf er á mati eða áliti óháðra aðila. Þar mun ráðgjafaþjónusta Þekkingar koma til sögunnar.








