Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking fær aðild að rammasamningi um ráðgjöf í upplýsingatækni Þekking tók nýlega þátt í útboði

Þekking fær aðild að rammasamningi um ráðgjöf í upplýsingatækni

Þekking tók nýlega þátt í útboði á vegum Ríkiskaupa um aðild að rammasamningi fyrir ráðgjöf í upplýsingatækni. Skemmst er frá því að segja að Þekking hlaut aðild að viðkomandi samningi.

Forsendur útboðsins voru fjórar:

  1. Þörf ríkisins fyrir hágæða ráðgjafaþjónustu 
  2. Þörf fyrir fjárhagslega hagkvæmni og upplýsingar um verð og framboð 
  3. Nauðsyn þess að gefa öllum ráðgjöfum jafnan rétt og jöfn tækifari til keppa um þau verkefni sem bjóðast hjá ríkinu. 
  4. Þörf fyrir jafnræði og gagnsæi í vali á ráðgjafaþjónustu  

Samningurinn er til eins árs með heimild til framlengingar um 2x 1 ár. 

Samningurinn hefur það í för með sér að ríkistofnanir og ríkisfyrirtæki geta leitað til Þekkingar varðandi margvíslega ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. 

Kaup á ráðgjöf og fjölbreytileiki hennar, hjá opinberum stofnunum hefur verið töluverð á undanförnum árum. Ríkisstofnanir kaupa í ríkara mæli margvíslega þjónustu af sjálfstætt starfandi sérfræðingum svo sem bókhald og kennslu. Ennfremur kaupir hið opinbera margvíslega ráðgjöf sérfræðinga eins og viðskiptafræðinga, lögfræðinga, verkfræðinga, tölvunarfræðinga og arkitekta i tengslum við nánar afmörkuð verkefni. Oftast er það vegna þess að viðkomandi stofnun býr ekki yfir þeirri sérfræðiþekkingu sem leitað er eftir eða að þörf er á mati eða áliti óháðra aðila. Þar mun ráðgjafaþjónusta Þekkingar koma til sögunnar.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf