Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking fær vottun skv. ISO 27001 öryggisstaðlinum Þekking hf. hefur staðist vottun samkvæmt staðlinum ISO 27001, stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Nú á

Þekking fær vottun skv. ISO 27001 öryggisstaðlinum

Þekking hf. hefur staðist vottun samkvæmt staðlinum ISO 27001, stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Nú á haustmánuðum 2009 fór fram úttekt á stjórnkerfi upplýsingaöryggis hjá Þekkingu og skemmst er frá því að segja að starfsemi Þekkingar stóðst þá úttekt.

Við höfum í nokkurn tíma byggt upp og sett okkur markvissa stefnu í upplýsingaöryggismálum og höfum unnið samkvæmt viðmiðum ISO 27001 staðalsins, segir Stefán Jóhannesson framkvæmdastjóri Þekkingar.

Nú er svo komið að sífellt eru gerðar strangari kröfur til starfsemi eins og Þekkingar hvað varðar meðhöndlun og meðferð upplýsinga. ISO 27001 staðallinn sýnir að við fylgjum viðurkenndum viðmiðum í þessum málum og mun tvímælalaust styrkja okkar stöðu sem þjónustuaðila á sviði reksturs og hýsingu tölvukerfa. Vottunin staðfestir að Þekking hefur byggt upp og starfrækir virkt stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

Um ISO 27001

ISO 27001 er alþjóðastaðall sem var saminn til þess að útbúa líkan til að koma upp, innleiða, starfrækja, vakta, rýna, viðhalda og endurbæta stjórnkerfi upplýsingaöryggis (e. Information Security Management System). Hann er gefinn út hér á landi af Staðlaráði Íslands.

Mörg fyrirtæki hafa tekið þá ákvörðun að taka upp stjórnkerfi upplýsingaöryggis en Þekking er 13 fyrirtækið á Íslandi sem nær þessum áfanga.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf