Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking gerir ráðstafanir vegna hugsanlegs öskufalls Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur varla farið framhjá neinum sem býr á Íslandi. Ekki er útilokað að

Þekking gerir ráðstafanir vegna hugsanlegs öskufalls

Eldgosið í Eyjafjallajökli hefur varla farið framhjá neinum sem býr á Íslandi. Ekki er útilokað að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu sem og á Akureyri. Í ljósi þessa hefur Þekking gripið til ráðstafana til að bregðast við slíkum atburði þar sem fyrirtækið rekur vélasali bæði á Akureyri og í Kópavogi.

Öryggisnefnd Þekkingar hefur útbúið sérstaka neyðaráætlun vegna öskufalls, en það er markviss áætlun um hvernig bregðast eigi við ef kemur til þessarra aðstæðna. Í neyðaráætluninni felst m.a. vöktun á utanaðkomandi aðstæðum og ásamt aukinni vöktun á starfsstöðvum.  Eins staðan er í dag eru litlar líkur á stórfelldu öskufalli í Reykjavík og á Akureyri. Engu að síður er það hluti af öryggisáætlun Þekkingar að bregðast við náttúruhamförum með tilteknum hætti. Þekking hf. er með öryggisvottun samkvæmt ISO27001 staðlinum.

Ef áhugi er á að leita eftir ráðgjöf frá Þekkingu varðandi ráðstafanir gagnvart tölvukerfum vegna öskufalls, þá má hafa samband við Odd Hafsteinsson, oddur@thekking.is eða 460-3100



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf