
Þekking hefur gert samning við þýska fyrirtækið Netviewer AG um umboð fyrir samnefndum fjarfundahugbúnaði frá fyrirtækinu.
Þekking fyrsti "local" hýsingaraðili á Netviewer í heiminum
Samningurinn felur m.a. í sér að Þekking hefur einkarétt á sölu og þjónustu fyrir Netviewer fjarfundahugbúnaðinn á Íslandi. Samningurinn er einnig sérstakur fyrir þær sakir að Þekking mun hýsa lausnina, en Netviewer AG hefur ekki farið í slíkt samstarf áður með nokkrum samstarfsaðila í heiminum. Lausnin verður sett upp á netþjóni í hýsingarsal Þekkingar. Ólafur Kjartansson, frá markaðssviði Netviewer AG, fagnar samstarfinu við Þekkingu. Við hjá Netviewer gerum miklar kröfur til samstarfsaðila okkar hvað varðar fagmennsku og gæði þjónustu. Við teljum að Þekking uppfylli vel væntingar okkar hvað þetta varðar, segir Ólafur.
Fullkomin og hagkvæm lausn
Við teljum að þessi lausn henti vel á íslenskum markaði enda er hún mjög samkeppnishæf hvað varðar verð og gæði, segir Auðunn Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Þekkingar. Enginn stofnkostnaður er í hugbúnaði heldur greiða fyrirtæki hóflegt mánaðargjald í samræmi við notkun hverju sinni. Auðunn segir að lausnin henti sérstaklega vel í því rekstrarumhverfi sem er ríkjandi á Íslandi í dag, því hún getur tvímælalaust sparað fyrirtækjum og stofnunum verulegan kostnað og tíma sem oft fylgir ferðalögum.
Um Netviewer AG
Netviewer AG er þýskt fyrirtæki sem stofnað var árið 2001. Fyrirtæki er talið leiðandi á sínu sviði og hefur vaxið ört frá því það var stofnað. Fyrirtækið er með starfsemi víða í Evrópu og hjá því starfa um 260 manns. Um fimmtán þúsund fyrirtæki og stofnanir af öllum stærðum og gerðum, í 55 löndum, eru að nota fjarfundalausnir frá Netviewer AG. Þar á meðal má nefna aðila eins og Bayer, BMW, Deutsche Post, Ernst & Young, SAP, Siemens, and Swisscom. Sjá nánar á http://www.netviewer.net/
Nánari upplýsingar veitir Auðunn Stefánsson, sölu- og markaðsstjóri Þekkingar, audunn@thekking.is eða 460 3100.








