
Þann 1. nóvember sl. átti Þekking hf. 10 ára starfsafmæli. Fyrirtækið var stofnað þann 1. nóvember 1999 af KEA og Íslenska hugbúnaðarsjóðnum, með aðsetur á Akureyri, en fyrirtækið var stofnað upp úr tölvudeild KEA sem var sett á fót árið 1974. Það má því segja að Þekking eigi sér því langa sögu miðað við fyrirtæki á þessu sviði.
Gífurlegar breytingar urðu í atvinnu- og viðskiptalífi landsmanna í kringum síðustu aldamót sem höfðu m.a. áhrif á rekstur Kaupfélags Eyfirðinga eins og mörg önnur fyrirtæki. Ráðist var í viðamikla fyrirtækjavæðingu einstakra deilda félagsins og má þar á meðal nefna sjávarútvegsfyrirtækið Snæfell, Sjöfn og Kaffibrennslu Akureyrar. Hluti af þessari þróun var stofnun Þekkingar í samvinnu við Íslenska hugbúnaðarsjóðinn.
Í upphafi störfuðu 10 starfsmenn hjá Þekkingu en á þessum 10 árum hefur starfsmönnum fjölgað í um 50 manns. Á þessum tíma hefur Þekking eflst enn frekar og þann 1. maí 2001 sameinaðist Þekking fyrirtækinu Tristan ehf. sem var með starfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Tristan var stofnað í ágúst 1996 og sérhæfði sig á sviði tölvuþjónustu og ráðgjafar. Fyrrum starfsemi Tristan myndaði síðan kjarnann í því sem varð starfsstöð Þekkingar á höfuðborgarsvæðinu með aðsetur í Kópavogi. Saman mynduðu félögin síðan eitt öflugt fyrirtæki með þjónustu um allt land á sviði reksturs og hýsingu tölvukerfa.
Rekstur Þekkingar hefur gengið vel á undanförnum misserum. Fyrirtækið hefur vaxið hægt en örugglega með innri vexti og hefur staðið af sér þau áföll sem dunið hafa á íslensku efnahagslífi undanfarið. Því má m.a. þakka öflugum hópi starfsmanna og þeirri staðreynd að fyrirtækið er með breiðan og góðan hóp viðskiptavina. Í dag er Þekking hf. í eigu KEA og eignarhaldsfélagsins Fjöru, sem er í eigu nokkurra starfsmanna fyrirtækisins.








