
Rekstrarfélag Sarps sf. hefur samið við Þekkingu hf. um smíði á nýrri útgáfu af upplýsingakerfinu Sarpi sem er sérsmíðað kerfi fyrir menningarsögulegar upplýsingar hérlendis, m.a. muni, myndir, fornleifar, hús, þjóðhætt og örnefni.
Sarpurinn á sér rúmlega 10 ára sögu og hafa um 40 söfn og stofnanir tekið hann í noktun, m.a. vel flest byggðasöfn landsins, Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd ríkisins og Örnefnasafn Árnastofnunar. Rúmlega 900 þúsund færslur eru nú í gagnasafninu. Með tilkomu nýja kerfisins verður almenningi jafnframt veittur vefaðgangur að safninu.
Kerfið smíðað í .net umhverfi
Kerfið verður byggt á SQL gagnagrunni og .net forritun. Verkefnið er mjög umfangsmikið. Reiknað er með að því ljúki í lok þessa árs. Frosti F. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Sarps, segir að helsta ástæðan fyrir því að farið var í þetta verkefni sé sú að gamla kerfið hafi ekki uppfyllt þarfir notenda nægilega vel auk þess sem mikilvægt sé að gera gagnasafnið aðgengilegt á internetinu.
Þekking hf. annast rekstur og hýsingu tölvukerfi fyrir fjölda fyrirtækja og stofnana. Jafnframt því býður fyrirtækið uppá margvíslega þjónustu og sérlausnir, m.a. má nefna .net forritun, ráðgjöf varðandi upplýsingaöryggi og skjalastjórnun ásamt sölu og þjónustu á ýmsum viðskipta- og hópvinnukerfum. Í dag rekur fyrirtækið tvær starfsstöðvar, á Akureyri og í Kópavogi, með um 50 starfsmenn. Þekking þjónar fyrirtækjum víða um landið og eru margir af viðskiptavinum þess í hópi stærstu fyrirtækja landsins.
Nánari upplýsingar veitir Oddur Hafsteinsson, oddur@thekking.is.








