Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Þekking innleiðir Microsoft Office Communication Server Síðustu vikur hafa sérfræðingar Þekkingar á sviði Microsoft lausna unnið ötullega að innleiðingu

Þekking innleiðir Microsoft Office Communication Server

Síðustu vikur hafa sérfræðingar Þekkingar á sviði Microsoft lausna unnið ötullega að innleiðingu Microsoft Office Communication Server (OCS) fyrir starfsemi Þekkingar. Innleiðingin hefur gengið afar vel og hafa starfsmenn tekið hinni nýju lausn fagnandi enda um gríðarlega öflugt tól að ræða.

„Þekking hefur nú þegar innleitt OCS hjá nokkrum viðskiptavinum með góðum árangri og við gátum ekki verið þekkt fyrir annað en að nýta þessa frábæru lausn sjálf“, segir Oddur Hafsteinsson, sviðsstjóri ráðgjafa og sérlausnasviðs Þekkingar, en Oddur stýrði innleiðingu kerfisins.

„Með þessu náum við að sameina margar lausnir í eina auk þess sem við náum fram samþættingu við önnur kerfi eins og t.d. Microsoft Exchange póstþjóninn“, bætir Oddur við. 

OCS samskiptaforritið sameinar margar þarfir í einni öflugri lausn. Þeir eiginleikar OCS sem Þekking nýtir eru:

Símkerfi

OCS verður viðmót starfsmanna þegar þeir hringja og taka á móti símtölum. OCS er m.a. beintengt við lista tengiliða í Exchange og þar með er einfalt að hringja beint frá tölvunni í skráða tengiliði. 

Upplýsingar um starfsmenn

OCS einfaldar skiptiborði að sjá stöðu starfsmanna, þ.e. hvort þeir séu í vinnu, veikir heima, á fundi osfrv. Jafnframt geta starfsmenn sjálfir sett inn skilaboð um stöðu sína sem eru aðgengileg bæði fyrir skiptiborð sem og vinnufélagana.

Snarskilaboð.

Hluti af OCS lausninni er að starfsmenn geta sent snarskilaboð á milli sín og einnig til aðila utan fyrirtækisins og skiptir engu máli hvort sá aðili sé með MSN eða annað tól til að senda snarskilaboð. Hér er um mun öruggari samskiptamáta, Transport layer security, að ræða heldur en t.d. MSN skilboð. Öll skilaboð sem fara í gegnum kerfið eru með öflugri dulkóðun, á meðan samskipti í gegnum t.d. MSN eru opin.  

Fjarfundakerfi

Töluverður ávinningur fylgir fjarfundalausninni sem fylgir kerfinu. Þetta á sérstaklega við þar sem starfsemi er dreifð og starfsmenn eru mikið á ferðinni líkt og hjá Þekkingu. Einfalt mál er að boða til funda þar sem notendur geta setið við sína vinnustöð hvar sem þeir eru staddir. Hægt er að deila efni af skjá notanda og fundargestir geta fengið aðgang til að taka yfir tölvur hver hjá öðrum. Enn fremur er hægt að framkvæma kannanir, sýna Power Point sýningar, deila efni og bjóða inn aðilum utan fyrirtækis.

Hér er að finna myndband sem sýnir vel þá möguleika sem fjarfundarlausnin hefur uppá að bjóða.

Nánari upplýsingar um OCS veitir Oddur Hafsteinsson, oddur@thekking.is eða 460 3100.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf