Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Tilboð Þekkingar til Sprotafyrirtækja Það er auðvelt að standa til hliðar og benda á hvað stjórnvöld eða

Tilboð Þekkingar til Sprotafyrirtækja

Það er auðvelt að standa til hliðar og benda á hvað stjórnvöld eða aðrir eigi að gera til að rétta íslenskt viðskiptalíf við. Það er hins vegar erfiðara að sýna frumkvæði og skapa lausnir sem geta skapað störf og tekjur fyrir þjóðarbúið. Við hjá Þekkingu stöndum í þeirri trú að sá kraftur sem býr í íslenskum frumkvöðlum muni leiða okkur út úr núverandi ástandi og viljum leggja þeim okkar lið.

Tvær leiðir

Þekking hefur ákveðið að styðja við íslensk sprotafyrirtæki með því að bjóða þeim tvo pakka, eða tvær leiðir sem miða að því að létta undir við standsetningu fyrirtækisins.

Áfram Ísland – Hvatningarpakki

Þekking hf. vill leggja sitt af mörkum við endurreisn íslensks viðskiptalífs og býður íslenskum sprotafyrirtækjum aðstoð sína með aðgengi að lausnum fyrirtækisins. Í apríl og maí býðst sprotafyrirtækjum sérstakur stuðningur frá Þekkingu sem gildir til ársloka 2009 og er án allra skuldbindinga. Þekking býður fram allar þær UT lausnir sem þarf til að koma fyrirtæki af stað og skapa því góðan grundvöll til framtíðar, m.a. hýsingu aðgengi að símkerfi, tölvupósti, hýsingu á vef osfrv. 

Fyrir allt að 5 notendur býður ÞEKKING hvatningarpakkann frían til ársloka 2009
  • IP símalausn í kerfisveitu
  • Fullkominn tölvupóstur með dagatali, miðlægu hópvinnukerfi, verkefnalista ofl.
  • Hýsingu á vefsvæði og léni
  • Fría uppsetningu á ofantöldum lausnum

Áfram Ísland – Bakhjarlapakki

Þekking hf. býður fyrirtækjum aðstöðu og aðgengi að sérfræðingum sínum til aðstoðar. Tilboði þessu fylgja ákveðin skilyrði en það getur falið í sér eftirfarandi:

  • Skrifstofuaðstöðu
  • Símsvörun
  • Bókhalds-, markaðs- og söluráðgjöf
  • Tækniaðstoð 

Nánari upplýsingar veitir sölu- og markaðssvið Þekkingar í síma 460-3100 eða sala@thekking.is

Tilboðið og forsendur þess má nálgast í heild sinni með því að smella hér.



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf