Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Vantar þig vefsíðu? Þekking getur veitt viðskiptavinum sínum aðstoð varðandi hönnun og uppsetningu á vefsvæðum. Sérfræðingar Þekkingar þróa í dag

Vantar þig vefsíðu?

Þekking getur veitt viðskiptavinum sínum aðstoð varðandi hönnun og uppsetningu á vefsvæðum. Sérfræðingar Þekkingar þróa í dag lausnir bæði fyrir innri- og ytri vefi. Þekking þjónustar í dag ýmis mismunandi vefumsjónarkerfi og felst þjónusta fyrirtækisins í ráðgjöf og þarfagreiningu varðandi uppsetningu og skipulag vefsvæðisins. Sé þess óskað geta sérfræðingar Þekkingar einnig komið að uppsetningu, rekstri og innsetningu efnis á síður viðskiptavina.

Á meðal þeirra vefumsjónarkerfa sem Þekking býður upp á eru:

  • Microsoft SharePoint
  • Joomla
  • Wordpress
  • Drupal 
  • Ofl.

Joomla: Frítt vefumsjónarkerfi!

Fyrir þá sem leita að öflugu vefumsjónarkerfi sem getur leyst grunnþarfir flestra einstaklinga og fyrirtækja, þá er Joomla svarið. Kerfið getur sent út fréttabréf, haldið utan um póstlista, boðið upp á innskráningu notenda, og margt fleira. Joomla er með innbyggt öflugt fréttakerfi og fjöldi lausna er fáanlegur frítt á netinu, s.s. myndaumsjónarkerfi, atburðaskráning ofl.

Þar sem Joomla er svokallað „Open Source“ kerfi er enginn kostnaður vegna leigu eða kaups á kerfinu. Fjöldi sniðmáta er fáanlegur þ.a. í einhverjum tilfellum geta notendur sett kerfið upp án nokkurs stofnkostnaðar. Fyrir þá sem vilja aðstoð geta sérfræðingar Þekkingar sett upp síður og er uppsetning á einfaldri síðu afar ódýr og hentug lausn. Það er engin tilviljun að fjöldi fyrirtækja, sveitarfélaga og einstaklinga skuli nýta sér Joomla kerfið hérlendis.

Þekking getur tekið að sér hönnum og smíði á vef fyrir viðskiptavini sína innan Joomla kerfisins. Fyrirtæki geta eignast einfalda heimasíðu fyrir einungis 39.900 kr. m/vsk. Í því tilviki sjá sérfræðingar Þekkingar um hönnun og uppsetningu innan kerfisins. Sé þess óskað er einnig hægt að fá kennslu á umsýslu Joomla kerfisins auk þess sem hægt er að útbúa fjöldann allan af sérlausnum, s.s. í tengslum við myndbirtingu, viðburðaskráningu ofl.

Vefhýsing

Þekking býður ýmsar tegundir vefhýsingar sem henta flestum fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum. Fyrir þá sem vilja einfaldan og ódýran þjónustumöguleika hentar vefhótel Þekkingar vel, en öðrum hentar hin almenna vefhýsingarþjónusta betur. Fyrir þá sem þurfa síðan flóknari hýsingu, t.d. leigu á eigin vél er útbúið sérstakt tilboð. Á heimasíðu Þekkingar eru upplýsingar um mismunandi hýsingarmöguleika og verð: http://www.thekking.is/page/samanburdur_vefhysingar



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf