Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Windows 7 á leiðinni Windows 7, nýjasta stýrikerfi Microsoft, er að koma á markaðinn (22. okt nk.). Nú

Windows 7 á leiðinni

Windows 7, nýjasta stýrikerfi Microsoft, er að koma á markaðinn (22. okt nk.). Nú þegar hefur endanlega útgáfan verið gerð aðgengileg fyrir sölu- og þjónustuaðila sem og viðskiptavini með OVS samninga.

Starfsmenn Þekkingar hafa frá því Beta útgáfan af stýrikerfinu kom út verið með það í prófun og hefur kerfið almennt fengið góðar viðtökur. Þykja möguleikar kerfisins skemmtilegir auk þess sem það er afar létt í vinnslu. Mikið efni er nú þegar aðgengilegt á vefnum í sambandi við stýrikerfið þó megnið af því sé á ensku.

Á síðu Microsoft má finna gagnlegar upplýsingar um útgáfuna auk þess sem hægt er að skoða myndbönd sem miða bæði að hinum almenna notanda og sérfræðingum:

 

 

Þekking hvetur fyrirtæki og stofnanir til að leita sér ráðgjafar í tengslum við útgáfuna. Við bjóðum upp á kynningarfundi þar sem farið er yfir breytingarnar og þá möguleika sem fyrirtæki og stofnanir hafa í leyfismálum.

 

Uppfærsla í úr XP og Vista getur verið nokkuð flókin í sumum tilvikum og ekki er mögulegt að uppfæra beint úr öllum útgáfum. Það þýðir að viðskiptavinir sem vilja taka stýrikerfið í notkun þurfa í einhverjum tilvikum að setja vélar upp frá grunni.

 

Pantaðu kynningafund með því að senda póst á sala@thekking.is



moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf