
Fyrir aðila sem keyptu nýja tölvu með Windows 7 OEM eftir 2. júní 2012, mun bjóðast uppfærsla í Windows 8 Professional á 2.500 krónur. Áætlað er að Windows 8 komi út seint í október á þessu ári.
Tilboð þetta er eingöngu í boði fyrir Windows 7 OEM hugbúnað sem keyptur er með nýjum tölvum. Tilboð þetta gildir ekki um FPP smásölupakka eða magnkaupasamninga Microsoft.
Eftirfarandi hugbúnaður veitir uppfærsluréttindi í Windows 8 Professional:
- Windows 7 Home Basic
- Windows 7 Home Premium
- Windows 7 Professional
- Windows 7 Ultimate
Microsoft
gerir kröfu um að aðilar hafi keypt Windows 7 OEM hugbúnaðinn á
tímabilinu 2. júní 2012 til 31. janúar 2013, sem er lokadagsetning
tilboðsins.
Síðasti
pöntunardagur uppfærslunnar er 28. febrúar 2013. Greiðslumáti fer
fram með greiðslukorti og vakin er athygli á að Þekking hf. er ekki
aðili að þessum viðskiptum milli notenda og Microsoft.
Hægt er að
skrá sig á vefsetrinu www.windowsupgradeoffer.comí dag og fá staðfestingarpóst. Við útkomu Windows 8 Professional
munu viðskiptavinir fá tölvupóst með leiðbeiningum um niðurhal
hugbúnaðarins.
Viðskiptavinir munu einnig hafa möguleika að panta hugbúnaðinn á geisladiski, en ýmis innflutningsgjöld geta bæst við uppgefið verð á síðu Microsoft.







