Veeam Backup & Replication 5 er stórt stökk fram á við í hraða á afritun og endurheimt gagna, hvort sem um breytinga- eða heildarafritun er að ræða.
Með stuðningi við sértæka tækni til gagnaöryggis innan VMware vSphere 4 og VMware vStorage njóta viðskiptavinir Veeam eftirtalinna kosta svo fátt eitt sé upp talið:
- 10 sinnum meiri hraði á breytingaafritun
- Allt að 5 sinnum meiri hraði á heildarafritun
- 80% lægri kostnaður við nánast rauntímaverndun gagna (CDP) samanborið við hefðbundna CDP
- Allt að 30 prósent lægri geymslukostnaður
- Aukinn áreiðanleiki með stuðningi við nýjustu vStorage tækni
Veeam Backup & Replication er fyrsta heildarlausnin fyrir fyrirtæki sem sameinar möguleikann á afritun og fjölföldun gagna, svo hraðvirk og örugg endurheimt á VMware ESX og ESXi umhverfi verður leikur einn.







