Það fylgja því margir kostir að velja Microsoft C5
Microsoft C5 er samþætti viðskiptahugbúnaðurinn sem þú getur vaxið með. Víðtækar aðgerðir kerfisins og þaulprófuð tækni geta stutt og bætt alla starfsemi í fyrirtækinu. Microsoft C5 fæst einnig sem Microsoft C5 Light, sem hentar einyrkjum og fyrirtækjum með einfaldari rekstur. Microsoft C5 Light er með öllum nauðsynlegum grunnaðgerðum og því fylgir handbók svo að auðvelt er að byrja.
Sönnun um áreiðanleika
Yfir 80.000 vel heppnaðar innleiðingar í margvíslegum starfsgreinum og yfir 100 viðbótar- og sérlausnir sanna frábæran árangur. Microsoft C5 er fjárhagskerfi sem hægt er að reiða sig á og margir endurskoðendur nota það og mæla með því. Fljótlegt og þægilegt í innleiðingu: Það tekur enga stund að setja Microsoft C5 upp og gera það tilbúið til notkunar. Þetta er einföld stöðluð lausn sem er tilbúin til notkunar alveg frá byrjun. Einfalt kerfið tryggir þér fljótlega innleiðingu – þar er þjálfunartími starfsmanna innifalinn. Myndrænt notendaviðmótið fylgir stöðlum Microsoft: þægilegt og hvetjandi svo að notandinn ratar auðveldlega um kerfið í Microsoft Windows umhverfi.
Sveigjanleiki
Veldu stöðluðu grunnlausnina með öllum aðgerðum og bættu svo við aukaaðgerðum úr miklu úrvali staðlaðra Microsoft C5 eininga, viðbótarlausna og sérlausna frá samstarfsaðilum okkar sem eru byggðar á tíu ára samstarfi við ánægða viðskiptavini. Byrjaðu smátt og taktu svo út vöxtinn með Microsoft C5.
Microsoft C5 einingalínan
Þú getur með öðrum orðum sett saman lausn sem hentar fyrirtækinu og þörfum þess. Þú byrjar þannig með C5 grunnpakka eða C5 Light sem þú bætir síðan smám saman við.
Grunneiningar Microsoft C5
-
Fjárhagur
-
Viðskiptavinir
-
Lánadrottnar
-
Birgðir
Einnig er hægt að bæta við eftirfarandi einingum við Microsoft C5
-
Rafræn viðskipti
-
Pantanir
-
Innkaup
-
Verkbókhald
-
Víddir
-
Gagnaskipti með ODBC
-
Samstæðureikningsskil
Aðgerðir í Microsoft C5
Meðal öflugra aðgerða í Microsoft C5 eru margir gjaldmiðlar, bókhald, rakning færslna og bókun í þremur víddum (deild, kostnaðarstaður og verkefni) auk lykils. Bætt birgðastjórnun með raðnúmerastjórnun og vörurakningu auk prenttengingar við Office gerir þér t.d. kleift að setja upp og prenta reikninga í Microsoft Word. Auk þess getur Microsoft C5 t.d. flutt færslulista beint í Microsoft Excel.
Þá gefur Microsoft C5 þér einnig kost á að nota Microsoft SQL þjón sem gagnagrunn með þeim öryggiskostum og skýrslugerðarmöguleikum sem því fylgja.








