Þekking hf. býður frábærar lausnir fyrir fyrirtæki sem vilja draga úr kostnaði vegna fundahalda. Oft liggur talsverður kostnaður í því að koma starfsmönnum á einn og sama staðinn til fundahalda, bæði vegna ferða- og uppihalds og einnig vegna tapaðra vinnustunda í ferðalög. Með öflugu fjarfundakerfi má draga talsvert úr kostnaði vegna fundahalda auk þess sem hægt er að boða til kynninga og funda með stuttum fyrirvara innan fyrirtækja sem dreifð eru á fleiri en einn stað.
Fjölbreyttir möguleikar
Lausnir Þekkingar bjóða möguleikann á því að halda kynningu og fundi á einfaldan hátt yfir netið. Lausnirnar bjóða möguleikann á fundarboðum fyrir þátttakendur sem ekki eru með kerfið uppsett hjá sér, deilingu á skjáborði (e. Desktop Sharing), video, tal yfir netið (e. VoIP), sendingu og móttöku skjala, snarspjall (e. chat), kannanir, ofl. Þeir gestir sem ekki hafa kerfin uppsett hjá sér fá einfaldar leiðbeiningar með fundarboðum og geta komist inn á fundinn hvar og hvenær sem er án nokkurra vandræða. M.a. er í boði lausn sem innifelur engan stofnkostnað í hugbúnaði heldur hóflegt mánaðargjald fyrir afnot.
Bókaðu kynningu á fjarfundalausn Þekkingar og þú gætir sparað fyrirtæki þínu háar fjárhæðir strax í dag.
Fjölbreyttir möguleikar
Lausnir Þekkingar bjóða möguleikann á því að halda kynningu og fundi á einfaldan hátt yfir netið. Lausnirnar bjóða möguleikann á fundarboðum fyrir þátttakendur sem ekki eru með kerfið uppsett hjá sér, deilingu á skjáborði (e. Desktop Sharing), video, tal yfir netið (e. VoIP), sendingu og móttöku skjala, snarspjall (e. chat), kannanir, ofl. Þeir gestir sem ekki hafa kerfin uppsett hjá sér fá einfaldar leiðbeiningar með fundarboðum og geta komist inn á fundinn hvar og hvenær sem er án nokkurra vandræða. M.a. er í boði lausn sem innifelur engan stofnkostnað í hugbúnaði heldur hóflegt mánaðargjald fyrir afnot.Kynning yfir netið
Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér fjarfundalausnir er gagnlegast að fá kynningu í gegnum fjarfundalausn Þekkingar. Val á kerfi byggir á núverandi kerfisuppsetningu hjá fyrirtæki og tekur skjótan tíma að finna út hvaða lausn hentar viðkomandi fyrirtæki. Sé kynning bókuð hjá ráðgjöfum Þekkingar er þörf á kerfi metin, fundinn hentugur tími fyrir viðskiptavin og farið í gegnum kynningu á kerfinu á stuttum tíma yfir netið. Slíkar kynningar eru að sjálfsögðu án allra skuldbindinga.Bókaðu kynningu á fjarfundalausn Þekkingar og þú gætir sparað fyrirtæki þínu háar fjárhæðir strax í dag.








