Sérfræðingar/ kerfisstjórar
Starfssvið:
- Uppsetning og viðhald búnaðar og kerfa viðskiptavina
- Aðstoð við viðskiptavini, tæknivinna og ráðgjöf.
- Þátttaka í teymisvinnu stærri viðskiptavina
Hæfniskröfur:
- Þekking og reynsla af staðarnetsbúnaði og stýrikerfum
- Reynsla og þekking á Microsoft lausnum
- Þekking á Cisco og Linux er æskileg
- Reynsla af uppsetningum og viðhaldi á vélbúnaði og stýrikerfum hjá fyrirtækjum
- Microsoft-próf og aðrar viðeigandi gráður æskilegar
Söluráðgjafi
Við erum að leita að hressum einstaklingi í starf
söluráðgjafa. Starfsmaður yrði staðsettur á skrifstofu Þekkingar í Urðarhvarfi 6 í Kópavogi.
Starfssvið:
- Mun bera ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd úthringi verkefna með hliðsjón af vöru og þjónustuframboði Þekkingar
- Sinna söluverkefnum/tilboðs og samningagerð gagnavart minni viðskiptavinum
- Styðja viðskiptastjóra hjá Þekkingu í söluverkefnum og tilboðsgerð
Hæfniskröfur
- Þarf að hafa góða framkomu, samskiptahæfileika og metnað í starfi
- Þekking og reynsla af sölustörfum af einhverju tagi er æskileg
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Skipulagshæfni, frumkvæði og mikil þjónustulund
Þekking hf. er vottað samkvæmt ISO27001 öryggisstaðlinum. Það er metnaðarmál fyrirtækisins að vera ávalt í fremstu röð á sínu sviði. Á meðal viðskiptavina fyrirtækisins eru mörg af stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins. Hjá Þekkingu hf. starfa nú rúmlega 40 manns og starfsstöðvar eru á tveimur stöðum á landinu, í Kópavogi og á Akureyri. Öflug símenntunarhvatning ásamt fjölskylduvænu starfsumhverfi er hluti af starfsmannastefnu Þekkingar hf.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist í tölvupósti á atvinna@thekking.is. Þekking er sífellt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að starfa í ört vaxandi fyrirtæki með áhugasömu og metnaðarfullu starfsfólki.
Starfsmenn Þekkingar eru um 50 talsins með fjölbreytta menntun og bakgrunn.







