Á vef Þekkingar hf. gilda þær reglur um meðferð persónuupplýsinga að safna engum persónugreinanlegum upplýsingum þegar vefsvæðið er heimsótt, nema því aðeins að upplýst samþykki lesandans liggi fyrir. Vefþjónn Þekkingar hf. þekkir aðeins internet svæðisnafnið og IP vistfangið lesandans. Þessar upplýsingar gefa ekki aðgang að netfangi eða öðrum persónugreinanlegum upplýsingum.
Safnað er upplýsingum um fjölda heimsókna, flettingar og sambærilegar upplýsingar um notkun og nýtingu vefsins án þess að þær séu raktar til einstakra notenda. Þetta er eingöngu gert í þeim tilgangi að bæta innihald og notkun vefsins.
Ef lesandi kýs að veita persónulegar upplýsingar s.s. með áskrift að fréttabréfum, senda fyrirtækinu skilaboð eða fylla út umsókn af einhverju tagi á vefnum eru þær upplýsingar eingöngu nýttar í þeim tilgangi sem þeirra er aflað og í engum tilfellum er þeim deilt með utanaðkomandi aðilum nema þess sé krafist af yfirvöldum og sé í samræmi við lög.
Ef óskað er frekari upplýsinga um meðferð persónugreinanlegra upplýsinga á þessum vef vinsamlegast sendið tölvupósti á netfangið thekking@thekking.is eða í síma 460 3100








