Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Með því að nota handbókarkerfi Þekkingar í SharePoint er verið að tryggja að öll skjöl séu geymd á miðlægum gagnagrunni þar sem starfsfólk getur nálgast

Handbókakerfi í SharePoint

Með því að nota handbókarkerfi Þekkingar í SharePoint er verið að tryggja að öll skjöl séu geymd á miðlægum gagnagrunni þar sem starfsfólk getur nálgast handbækurnar á auðveldan og öruggan hátt.
Handbækur í slíku kerfi eru settar upp á þann veg að skjöl finnist fljótt og örugglega með því að nota skipulagða flokkun á skjölum og með því að setja upp hinar ýmsu sýnir á þau skjöl sem verið er að leita að.
Öll skjöl eru flokkuð með lýsigögnum sem hentar hverri handbók fyrir sig:

  • Tegund skjals
    • verklagsregla  (VLR)
    • vinnulýsing  (VLS)
    • eyðublað  (EBL)
    • kennsluefni  (KEN)
    • leiðbeiningar  (LEB)
    • gátlistar   (GÁL)
  • Ábyrgðarmenn skjala – (allir ábyrgðarmenn eða bara ákveðin ábyrgðarmaður)
  • Endurskoðunardagsetning
  • Kafli
  • Staða skjals (t.d. vinnustaða – útgáfuferli)
  • Verkferli (t.d. samþykktarferli – endurskoðunarferli)

Efnisstjórn skjala og mála
Handbókarkerfi Þekkingar býður upp á einfalda stjórnun á skjölum og góða aðgangsstýringu.

  • Hægt er að setja upp einfaldar sem og flóknar handbækur og flokka skjöl eftir hentugleika.
  • Hægt er að setja upp verkferli á borð við samþykktarferla, endurskoðunarferla ofl.
  • Setja lýsigögn og efnisorð á skjöl til að auðvelda flokkun.
  • Fylgjast með breytingarsögu skjala (check in and check out).
  • Fylgjast með útgáfustýringu skjala (versioning) en með því er hægt að skoða eldri útgáfur skjala
  • Búa til sniðmát af skjölum og margt fleira.
Almennt um SharePoint lausnina
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf