Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

 Tölvupóstur Hjá Þekkingu fær fyrirtækið aðgang að fullkomnum póstþjóni sem byggir á Microsoft

Heildarþjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir

Tölvupóstur Tölvupóstur

Hjá Þekkingu fær fyrirtækið aðgang að fullkomnum póstþjóni sem byggir á Microsoft Exchange 2010. Starfsmenn hafa auðvelt aðgengi í póstinn í gegnum Outlook eða vefaðgang. Sömuleiðis er hægt að tengja pósthólfið við flestar tegundir GSM símtækja.

Nánar...

 Gagnahýsing

Fyrirtækið fær aðgang að miðlægu gangasvæði. Hægt er með auðveldum hætti að skilgreina aðgang starfsmanna að gögnum fyrirtækisins.  Jafnframt bíður Þekking uppá hýsingu á öllum helstu bókhalds- og hópvinnukerfum á markaðnum.

Nánar...

 Hýsing

Þekking rekur fullkomna hýsingarsali í Kópavogi og á Akureyri. Salirnir eru hannaðir frá grunni  samkvæmt helstu stöðlum um gerð og uppbyggingu gagnavera. Viðskiptavinir geta bæði leigt búnað af Þekkingu eða leigt pláss fyrir eigin búnað og kerfi hjá Þekkingu.

 Nánar...

 Afritun

Þekking býður uppá afritun í gegnum einn öflugasta afritunarhugbúnað á markaðnum, Tivoli Storage Management. Afritunarþjónusta er jafnt í boði fyrir fyrirtæki í hýsingu sem og í gegnum gagnasambönd hjá fyrirtækjum sem eru með gögnin vistuð hjá sér.

Nánar...

Hugbúnaðarleyfi

Þekking veitir ráðgjöf til fyrirtækja við val og innkaup á ýmsum hugbúnaði sem þörf er á við daglega starfsemi. Þekking er endursöluaðili fyrir fjölda hugbúnaðarlausna og hefur til fjölda ára selt Microsoft leyfissamninga til fyrirtækja og stofnana.

 Nánar...

 Varnir

Þekking bíður upp að öflugar vírusvarnir til uppsetningar á tölvum notenda. Jafnframt eru öll gögn sem hýst eru hjá Þekkingu á bak við fullkominn eldvegg sem tryggir öryggi þeirra.

 Nánar...

Rekstur og þjónustuver

Viðskiptavinir geta fengið aðgang að breiðum hópi tæknimanna sem sinna daglegri viðhaldsþjónustu við tölvubúnað notenda. Jafnfram rekur Þekking öflugt þjónustuver sem veitir aðstoð í gegnum síma eða með yfirtöku á tölvum notenda.

Nánar...

 Tölvubúnaður

Þekking bíður viðskiptavinum uppá tölvubúnað frá helstu framleiðendum á markaðnum á góðum kjörum. Ef eftir því er óskað fær Þekking tilboð frá helstu birgjum til að veita samanburð.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf