Fyrir þá sem leita að öflugu vefumsjónarkerfi sem getur leyst grunnþarfir flestra einstaklinga og fyrirtækja, þá er Joomla svarið. Kerfið getur sent út fréttabréf, haldið utan um póstlista, boðið upp á innskráningu notenda, og margt fleira. Joomla er með innbyggt öflut fréttakerfi og fjöldi lausnar er fáanlegur frítt á netinu, s.s. myndaumsjónarkerfi, atburðaskráning ofl.
Enginn rekstrarkostnaður
Þar sem Joomla er svokallað „Open Source“ kerfi er enginn kostnaður vegna leigu eða kaups á kerfinu. Fjöldi sniðmáta er fáanlegur þ.a. í einhverjum tilfellum geta notendur sett kerfið upp án nokkurs stofnkostnaðar. Fyrir þá sem vilja aðstoð geta sérfræðingar Þekkingar sett upp síður og er uppsetning á einfaldri síðu afar ódýr og hentug lausn. Það er engin tilviljun að fjöldi fyrirtækja, sveitarfélaga og einstaklinga skuli nýta sér Joomla kerfið hérlendis.
Upplýsingar um Joomla kerfið
Upplýsingar um Joomla kerfið eru afar aðgengilegar á netinu og fjöldi vefsíða er helgaður kerfinu. Hér að neðan er listi yfir nokkrar síður sem hafa að geyma gagnlegar upplýsingar um kerfið:
- Heimasíða Joomla: http://www.joomla.org/
- Joomla á Íslandi: http://www.joomlis.net/
- Spjallsvæði Joomla: http://forum.joomla.org/
- Joomla á Wikipedia http://en.wikipedia.org/wiki/Joomla
Ódýr og einföld uppsetning
Þekking hf. býður upp á aðstoð við uppsetningu á Joomla síðum. Hafir þú áhuga á að fá tilboð í uppsetningu á síðu fyrir þig eða þitt fyrirtæki geturðu haft samband við Þekkingu í s. 460-3100 eða í gegnum netfangið sala@thekking.is







