Þekking hf, Rekstur tölvukerfa og hýsing

Open LicenseÞeir viðskiptavinir sem vilja kaupa sín leyfi og þ.a.l. eignast þau geta nýtt sér Open License fyrirkomulagið hjá Microsoft. Það fyrirkomulag

Kaup á leyfum

Open License

Þeir viðskiptavinir sem vilja kaupa sín leyfi og þ.a.l. eignast þau geta nýtt sér Open License fyrirkomulagið hjá Microsoft. Það fyrirkomulag hentar smáum og miðlungsstórum fyrirtækjum sem eru með að lágmarki 5 tölvur í notkun hjá sér. Viðskiptavinir hafa eins og í leigusamningum aðgang að leyfislyklum á netinu og geta með einum Volume license lykli nýtt sér miðlæg kerfi til að einfalda uppsetningu á Microsoft hugbúnaði.

Með Open License leyfum er hægt að kaupa uppfærslurétt til tveggja ára í senn og veitir hann notendum þá rétt á að uppfæra í nýjustu útgáfur Microsoft hugbúnaðar hverju sinni.
 

Pakkavara

Þekking hf. býður viðskiptavinum sínum að sjálfsögðu að kaupa staka pakka af Microsoft hugbúnaði. Slík pakkavara er í boði fyrir allan hugbúnað hjá Microsoft og hentar smærri fyrirtækjum sem ná að halda utan um leyfiseign sína og nýta sér ekki miðlæga uppsetningu á hugbúnaði. Pakkavöru fylgir ekki uppfærsluréttur, en viðskiptavinir geta keypt sér uppfærslu úr Volume Licensing kerfinu innan 90 daga frá kaupum á hugbúnaði í pakka.

Hverjum pakka fylgir oftast einn leyfislykill ásamt diskasetti og leiðbeiningum.

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf