Ráðgjafar Þekkingar aðstoða viðskiptavini sína við að útbúa handbækur af ýmsum toga. Ráðgjafar Þekkingar eru til leiðbeiningar um það hvernig er best að flokka og skilgreina þau skjöl sem eiga heima í handbókinni.
Betri upplýsingamiðlun
Tilgangurinn með handbókum er að tryggja að upplýsingar sem nauðsynlegar eru fyrirtækinu séu skjalfestar og einskorðist ekki við einstaka starfsmenn eða rekstraraðila. Einnig til að tryggja aðgengi að réttum upplýsingum og að auðvelda alla þjálfun nýs starfsfólks. Handbækur eru settar upp á þann hátt að þær séu einfaldar í notkun og gefi jafnframt gott yfirlit yfir það efni sem þær hýsa.
Ávalt er mælt með að hver handbók hafi ábyrgðarmann sem sér um að ritstýra henni.
Ábyrgð hans felst m.a. í að:
- Að öll skjöl séu með stöðluðu útliti.
- Að skjöl séu vistuð á réttan stað.
- Að tryggja að útgáfustýring og aðgangsstýring sé í lagi.
- Að setja af stað endurnýjunarferli eða samþykktarferli.
Almenn uppbygging handbóka
- Útbúin eru stefnuskjöl sem segja til um uppbyggingu handbókarinnar og framkvæmd.
- Út frá stefnuskjölunum eru útbúnar verklagsreglur sem segja til um hvaða verk þarf að vinna.
- Vinnulýsingar eru notaðar sem leiðbeiningar og lýsing á þeirri vinnu sem inna þarf af hendi.
- Eyðublöð, gátlistar og aðrar leiðbeiningar.








