Þekking hf. býður viðskiptavinum sínum hagkvæman valkost í uppsetningu á IP símkerfum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Byggt er á Asterisk lausninni, frjálsum hugbúnaði (e. Open Source) sem verið hefur í ört vaxandi notkun um allan heim síðustu ár. Lausnin býður alla þá möguleika sem IP símkerfi hafa almennt upp á að bjóða og meira til. IP samskiptatæknin hefur orðið sífellt meira áberandi í síma og samskiptabúnaði fyrirtækja á undanförnum árum og nú þegar mörg fyrirtæki leita hagræðingar í rekstri er þarna komin einföld leið til sparnaðar.
Tenging hvar og hvenær sem er
IP símar nota sömu gagnaflutningssambönd og annar tölvubúnaður. Fjárfestingar í búnaði nýtast því líka fyrir símtölin og samþætting verður á einfaldan hátt möguleg við tölvukerfi fyrirtækisins. Síminn er aðgengilegur hvar og hvenær sem er og hægt er að flytja samtöl á einfaldan máta á milli símstöðvar og GSM síma.
Til viðbótar við GSM samþættingarmöguleika er í kerfinu viðveruskráning, fjarfundamöguleiki, skiptiborð, hringihópauppsetning, áframsending símtala auk fleiri lausna sem auka á upplýsingaflæði innan fyrirtækja.
Lægri kostnaður
Þar sem símtöl fara í gegnum gagnasambönd fyrirtækisins er hægt að segja upp símalínum og spara þannig kostnað. Starfsmenn erlendis hringja í íslensk númer á innanlandstaxta, hægt er að lækka kostnað umtalsvert með GSM samþættingu og öll símtöl innan fyrirtækis eru gjaldfrjáls. Ennfremur býðst lægri taxti á símtölum í erlend númer.Með símkerfið í kerfisleigu hjá Þekkingu komast fyrirtæki hjá því að fjárfesta í dýrum búnaði. Þekking sér um reksturinn á kerfinu og því er kostnaður lægri og fyrirsjáanlegur auk þess sem einfalt leigumódel hjálpar fyrirtækjum að aðlaga sig að sveiflum í rekstrinum. Kerfið byggist á Open Source hugbúnaði og er möguleiki á notkun ókeypis tölvusíma sem geta sparað fyrirtækjum fjárfestingu í dýrum símtækjum.







