Frí kynning án allra skuldbindinga
Þekking býður fyrirtækjum og stofnunum kynningu á skjalaráðgjöf þeim að kostnaðarlausu. Skjalastjórn er grunnur að markvissu innra skipulagi upplýsinga og tryggir aukið öryggi mikilvægra skjala um leið það auðveldar starfsmönnum að finna skjöl fljótt og örugglega. Þekking vinnur eftir einfaldri og skilvirkri aðferðarfræði við skjalaráðgjöf.
Hvar þarftu aðstoð?
Ráðgjafar Þekkingar geta einnig komið að einstökum atriðum er koma skjalastjórn við, s.s. við stöðlun á útliti skjala t.d. bréfum, fundargerðum, skýrslum ofl. Einnig hefur fyrirtækið veitt ráðgjöf varðandi meðferð á útgefnu efni (geymsla, grisjun og eyðing) og hefur fjölbreytta möguleika í lausnum tengdum gagnasöfnum. Til viðbótar þessu hafa ráðgjafar Þekkingar aðstoðað við gerð neyðaráætlana, afritunarskýrsla og rekstrar-, öryggis og gæðahandbóka.
Af hverju skjalaráðgjöf?
Margvíslegur ávinningur er fólginn í því að fyrirtæki taki skjalamál sín föstum tökum. Geymsla og afritun gagna er sífellt að verða stærri hluti af rekstrarkostnaði fyrirtækja og því stuðlar fækkun skjala að lækkun kostnaðar. Betra aðgengi starfsmanna að skjölum eykur ennfremur framleiðni og skýrar reglur um meðferð skjala tryggja aukið öryggi í rekstrinum








